17.12.2009 | 21:49
Frá fótanuddtækjum til Hvannadalshnjúks ..
Við erum svo krúttleg þjóð, við Íslendingar. Við tökum svo innilega þátt í mörgum bólum, það er aldrei neitt hálfkák í dellunum hjá hinni íslensku þjóð.
Einhver töffarinn tók upp á því að synda í sjónum og var talinn hetja, nú er ekki þverfótað fyrir sjósundhetjum og þykir næstum orðið "klént" að stunda sjósund ..
Fólk leggur sömuleiðis í löngum bunum á Hvannadalshnjúk og gildir það sama og um sjósundið, vinkona mín ætlaði að gorta sig af því við sjúkraþjálfann að daginn áður hefði hún "brugðið sér" á Hnjúkinn, en hann svaraði að bragði "Ha, varst þú þar líka - skrítið að ég skyldi ekki rekast á þig, ég gekk líka á Hvannadalshnjúk í gær" ..
Esjan er auðvitað bara orðin eins og Laugavegurinn, enda komið kaffihús við Esjurætur til að sinna öllu göngufólkinu ..
Nýjasta bólan er reyndar mjög jákvæð bóla - eins og þær áðurnefndu, sem vonandi springur ekki, en úr hinum óvæntustu skúmaskotum spretta nú hönnuðir og íslenskur heimilisiðnaður hefur sjaldan blómstrað eins og núna á krepputímum.
Fólk sem hefur gengið með drauma um að hanna og framleiða hefur heldur betur sannað málsháttinn um neyðina sem kennir naktri konu að spinna.
Það hefur ýmislegt sprottið fram á undanförnum árum sem hefur notið vinsælda hjá þjóðinni, eflaust man ég ekki eftir öllu en datt í hug eftirfarandi:
- Fótanuddtæki
- Sólbaðsstofur
- Videóleigur
- Jólaglögg
- Pizzastaðir
- Sjósund
- Soda Stream
- Herbalife
- kórastarf
- Blogg
- Mannauðsstjórnun
- Esjuganga
- Hvannadalshnjúkur
- íslensk hönnun ..
Athugasemdir
Mundi strax eftir einu svo ég verð að kommenta hjá sjálfri mér:
"Kákásusgerillinn" sem átti að vera allra meina bót!
Jóhanna Magnúsdóttir, 17.12.2009 kl. 21:57
Hvað heita þær aftur dýru plastdollurnar sem allar konur "urðu" að kaupa :)
Tupperwarer ?
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 23:49
IPOD
Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 23:50
Nákvæmlega - Tupperware held ég - og IPOD ofcourse!
Jóhanna Magnúsdóttir, 18.12.2009 kl. 00:01
Ég hef alveg sloppið við: fótanuddtæki, sólbaðsstofur, sjósund, Soda Stream, Herbalife, Kórastarf og Mannauðsstjórnun. Annað hef ég fiktað við.
Erlend lán og lúxusjeppadellan hefur svo orðið mörgum dýrkeypt á þessum síðustu og verstu tímum.
Emil Hannes Valgeirsson, 18.12.2009 kl. 00:05
Ég er bara sek um tvennt af þessum lista... töluvert blogg og smá facebook
Jónína Dúadóttir, 18.12.2009 kl. 06:07
Ó, lúxusjepparnir - gleymdi þeim alveg, og myntkörfulán, takk fyrir þessa viðbót Emil.
Ha, ha. .. Jónína, ég er sko miklu "sekari" en þú, ég get nú x-að við ansi margt af þessu!
Jóhanna Magnúsdóttir, 18.12.2009 kl. 07:07
Heyrðu Jónína - ertu ekki að framleiða lopaflíkur eins og brjál.... ?
Jóhanna Magnúsdóttir, 18.12.2009 kl. 07:08
Þetta er svooo satt !
Marta B Helgadóttir, 18.12.2009 kl. 09:39
Heyheyhey! Þú gleymir alveg peningaæðinu, allir urðu að eiga sem mest af peningum!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 19.12.2009 kl. 00:18
Einmitt Marta,
gleymdi eiginlega:
rope yoga, pilates BOOT CAMP og núna nýjustu dellunni: Hot Yoga!
Segðu Róslín, Peningaæðið!
Jóhanna Magnúsdóttir, 19.12.2009 kl. 08:24
Hehe skemmtileg samantekt, og já við erum algjörir sveppir ef út í það er farið. Ekki gleyma sjöstjakanum frá gyðingum sem er/var næstum í hverjum glugga.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.12.2009 kl. 08:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.