Færsluflokkur: Bloggar
7.10.2011 | 06:33
Hefur þú þjáðst nóg? ...
Það er til utanaðkomandi þjáning og svo þjáningin sem við sköpum okkur sjálf. Ástandið getur verið þannig að það sé "hræðilegt" - en það fer líka eftir okkar túlkun eða upplifun hvernig við tökum því.
Þegar við óttumst, upplifum kvíða eða efumst um eigið ágæti, eigið verðmæti eða möguleika á að ná árangri, sköpum við okkur þjáningu.
Neikvæðni, öfund og lastmælgi - í eigin garð og annarra er það sem stuðlar að eigin þjáningu.
Sjálfsköpuð þjáning.
Við stundum hryðjuverk bæði á líkama og sál, - það kemur frá sömu rót og eina leiðin til að ná jafnvægi er að fara að elska sig, virða sig og trúa á sitt innra verðmæti.
Að búa sér til myndir í huganum af öllu því hræðilega sem gæti mögulega gerst, er líka sjálfsköpuð þjáning.
Við förum ansi langt í huganum. Ég hlustaði, eins og margir, á ræðu Steve Jobs um hvernig hann lifði lífinu, með því að hugsa að hann ætlaði að gera góða hluti vegna þess m.a. að tími okkar er takmarkaður. Þar lagði hann áherslu á það að hlusta á hjarta sitt, ekki láta suðið úr hugsunum eða höfði annarra, eða hugmyndir og kreddur annarra trufla okkur. - Að sama skapi megum við ekki láta neikvæðar hugsanir okkar trufla okkur, hefta okkur í för á lífsgöngunni þannig að við förum að hiksta, - jafnvel stoppa alveg og upplifa tilgangsleysi. Steve Jobs lifði fyrir hvern dag, og lifði stórt og skildi mikið eftir sig.
Hann hafði hugrekki til að lifa ástríðu sína vegna þess að hann vissi að tíminn var takmarkaður og hver dagur dýrmætur.
"Að finna hina dýrmætu perlu, - að finna að himnaríki er innan í þér núna á þessari stundu" - er ein af lexíum Jesú Krists - og einnig má finna þessa hugmyndafræði í fleiri trúarbrögðum, eins og Búddisma.
(Trúarbrögð eru ekki alslæm - og í raun eru þau bara eins og mennirnir taka við þeim, og vinna með þau).
Það er önnur leið til að lifa lífinu en að lifa í neikvæðni, í því að mata sig á því sem er okkur óhollt, hvort sem um líkamlegt fæði er eða andlegt. -
Þegar við hættum stríðinu, stríðinu við eigin líkama, stríðinu við eigin huga. Hættum að vera eigin hryðjuverkamenn, þá byrjum við að lifa í þeim samhljómi sem okkur er ætlað en ekki í fölskum innra (og ytri) heimi.
Ef við hættum stríðinu við okkur sjálf öðlumst við frið við okkur sjálf.
"Make love - Not War" ..
Eckhart Tolle talar hér um enda þjáningarinnar, "The end of Suffering" ..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2011 | 19:43
GÓÐUR FARANGUR Í "BAKPOKANN" ... ekki fyrir viðkvæma ;-)
Ég er að leiðsögukona á námskeiði þar sem leiðsagan felst meðal annars í því að leiðsegja fólki í göngu sinni að bæði andlegri og líkamlegri kjörþyngd. Það verður að fylgjast að.
Hið andlega gleymist nefnilega oft, og vigtin segir ekkert endilega til um árangur - ef að hamingjustuðullinn fer hratt niður og rýkur svo bara upp aftur þegar að "kúrinn" er búinn. Lífið er ekki kúr, - lífið er flæði. Við þurfum að flæða áfram - en ekki hökta.
Þegar við erum með neikvæðan farangur þá höktum við, - ég ætla ekki að skrifa hið neikvæða, því það sem við veitum athygli vex, heldur að veita athygli því sem kemur okkur áfram.
LAUSNIN - FARANGURINN OKKAR Á LÍFSGÖNGUNNI:
ALLT SEM LEIÐIR OKKUR Á VEG KÆRLEIKANS TÖKUM VIÐ MEÐ .... og listinn er að sjálfsögðu ekki tæmandi:
ALÚÐ - ÁST
DUGUR
FEGURÐ - FYRIRGEFNING - FYRIRMYND - FRIÐUR
GLEÐI - GÆFA - GÓÐMENNSKA - GÓÐAR HUGSANIR
HEIÐARLEIKI - HEILINDI - HÓFSEMI - HEILT HJARTA - HUGREKKI - HRÓS -
JÁKVÆÐNI - JAFNRÉTTI -
KÆRLEIKUR - KJARKUR 

MILDI - MÁTTUR -
SAMVINNA - SAMGLEÐJAST - SAMSKIPTI - SÁTT - SANNLEIKUR - SAMHLJÓMUR
TRAUST - TRÚNAÐUR - TILFINNINGAR - TRÚ -
UMBURÐARLYNDI - UNAÐUR
VINÁTTA - VIRÐING - VÍÐSÝNI - VELVILD -VERÐMÆTI - VISKA - VON
ÞRAUTSEIGJA - ÞOLINMÆÐI - ÞOR - ÞAKKLÆTI
"ÉG ELSKA MIG ALLA/N OG VIRÐI, LÍKAMA MINN, SÁL MÍNA OG HUGA MINN ... ÉG ER HEIL MANNESKJA ... "
"ÉG ELSKA NÁUNGA MINN EINS OG SJÁLFA/N MIG ... ÞESS MEIRA SEM ÉG ELSKA OG VIRÐI SJÁLFA/N MIG, ÞESS MEIRA ELSKA ÉG NÁUNGA MINN ... "
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.10.2011 | 08:50
Um Nýja testamentið sem gjöf Gídeon manna til skólabarna
Biblían er ekki bara til fróðleiks og ekki einungis ein bók í hilluna til að auðga menningarlæsi, - þó hún sé vissulega að mínu mati ómissandi - til að skilja menningu, sögu, listir o.s.frv. Hún er yfirlýst trúarrit kristinna manna og í henni er boðskapur um Jesú Krist. Margir segja hana heilagt rit.
Nýja testamentið er, eins og menn vita, hluti af þessari Biblíu. Á þeim forsendum að hún er trúarrit finnst mér þessi gjöf tll skólabarna vera áróður og þá um leið boðskapur.
Við verðum að huga að forsendum þess að lesa Nýja testamentið, en eins og við vitum eru í sumum tilfellum trúlausir/vantrúaðir betur lesnir í því en trúaðir.
Forsendur lestursins getur verið til að kynna okkur söguna, til að þekkja efnið sem verið er að ræða eða til að leita andlegs innblásturs. Stundum eitt, stundum allt þetta.
Sem móðir kvartaði ég undan því við umboðsmann barna á sínum tíma, þegar börnin komu heim úr leikskólanum með litabók frá Landsbanka Íslands.
Kannski óþarfa smámunasemi hjá mér, eða hvað? Ástæða mín var að mér fannst að börnin ættu að vera frjáls við utanaðkomandi áróður í leikskólanum. Fræjum er hægt að planta snemma. Það þarf alls ekkert að vera slæmt að vera í Landsbankanum og alls ekkert verra en öðrum bönkum, en hver var ástæða markaðsstjóra Landsbankans fyrir því að gefa börnunum bækurnar - eintóm góðmennska í garð barnanna?
Með því að gefa Nýja testamentið í skólanum er verið að ráðast inn í ákveðið rými, sem á að starfa í hlutleysi eins og mögulegt er, þar sem nemendum er kennt að taka sjálfstæðar ákvarðanir, greind þeirra og/eða náðargáfur þeirra eru kallaðar fram og í því starfi má ekki halda einu trúarriti að þeim frekar en öðru. Annað hvort ættu allir bankarnir að gefa litabækur eða enginn. Mitt val er enginn.
Ég reyni að byggja þessar pælingar mínar sem mest á eigin hyggjuviti - sem ég reyndar trúi að mér sé gefið af Guði. Guði í alheims geimi og Guði í sjálfri mér - eins og stendur í ljóðinu hans Steingríms Thorsteinssonar.
Guð er máttugri viska en sú að hún verði þögguð niður eða úthýst við að Nýja testamentinu verði ekki dreift í grunnskóla. Af hverju menn sækja þetta svona stíft? Er kannski vegna einhvers konar hefðar, sem er meira að segja orðin að rómantík hjá sumum eða nostalgíu, menn minnast þeirrar stundar þegar þeim var gefið Nýja testamentið og þar fram eftir götunum?
Verðum við ekki að sætta okkur við að heimurinn er fjölmenningarlegur og taka tillit til þeirra sem vilja annað og velja annað en við?
Má ekki bara fara einhvern þann veg að Gídeon menn gefi þeim sem þess óska - og annað hvort sé það sótt til þeirra, eða auglýstur tími þar sem þau sem hafa áhuga geti sótt sitt eintak í viðkomandi sóknarkirkju? Nú eða einfaldasta leiðin - gefa þeim sem hafa tekið þá ákvörðun að fermast í fyrsta fermingarfræðslutímanum?
Ljóðið hans Steingríms:
Trúðu á tvennt í heimi.
Tign sem æðsta ber.
Guð í alheims geimi.
Guð í sjálfum þér.
Elskaðu náungann eins og sjálfa/n þig...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
5.10.2011 | 06:36
Offita og anorexía heilans .. meðvirkni? ..
Fyrir u.þ.b. ári síðan fór ég á meðvirkninámskeið í Skálholti og þar kynntist ég Lausninni (í tvöfaldri merkingu þess orðs), - þar opnaðist mér sýn á mannlífið og sjálfa mig sem aldrei fyrr. Lærði að fella fullkomnunargrímuna og hafa hugrekki til að játast sjálfri mér sem manneskju. það var að sjálfsögðu fyrsta skrefið af mörgum sem ég hef tekið sl. ár, - og það er ekki eins og ég hafi ekki verið búin að vera í leit að svörum í mörg ár og búin að safna miklu efni í mína "körfu" fyrir, en það er eins og ég hafi náð að "safna mér saman" þegar ég áttaði mig á hvað var raunverulega í gangi. En að sjálfsögðu var það meðvirkni, en um hana má lesa t.d. hér á doktor.is - þetta er ekki beinlínis sjúkdómur, og þó - og a.m.k. mein þá helst samskiptalegt mein.
Það er það að vera óvirk eða vanvirk, virka ekki nema með samþykki annarra, vera háð áliti annarra og upplifa sig minni en aðra og ómerkilegri.
Meðvirkni er að sjálfsögðu líka týnd sjálfsmynd - því að sjálfsmyndin hefur týnst einhvers staðar á lífsleiðinni og það byrjar alltaf í bernskunni. Sjálfsmyndin verður einhvers konar spegilmynd forfeðra-og mæðra, og blanda af því sem við höfum tínt saman af viðhorfum og lærðum viðbrögðum í gegnum tíðina. En við sjálf erum hvergi sjáanleg.
Fjölskyldan getur hafa verið alveg "normal" en allar normal fjölskyldur glíma við vandamál og allar fjölskyldur eru ófullkomnar, enda fegurð mannlífsins og verkefni sem birtast í ófullkomnleikanum.
Á sama hátt og við upplifum okkur aldrei nógu góð, verðum við aldrei nógu mjó eða aldrei nógu góð í neinu.
Á námskeiðinu mínu í Skálholti sá ég fyrst bókina "Women, Food and God" - "An unexpected Path to Almost Everything" .. og keypti hana síðar þegar ég var á ferðalagi í Boston. Ég gjörsamlega "át" bókina, fannst ég hafa fengið opinberun og fyrsta hugmyndin var að kenna það sem þar kom fram - eða að "dreifa fagnaðarerindinu" ...
Geneen Roth, höfundur bókarinnar hafði fundið sér útgönguleið eftir margra ára ströggl, við alls konar og óteljandi megrunarkúra. Hún hafði verið að "borða" Guð - deyfa tilfinningar - á flótta frá sjálfri sér .....og Guði. Svipað og talað er um varðandi alkóhólisma "drinking god out of a bottle" .. það er verið að fylla upp í tómarúm, flýja tilfinningar, hugga sig, flýja lífið ...
Hennar guðsmynd er svipuð og segir í ljóðinu; "Guð í alheimsgeimi og Guð í sjálfum mér" sem er einn og sami guðinn - .. Guð sem er máttur og Guð sem er kærleikur, - en ekki gamall síðhærður (og reiður) karl.
Þegar við erum á þessum flótta þá flýjum við líka tilfinningar okkar, m.a. vegna þess að við kunnum ekki annað, það eru viðbrögðin sem við lærðum í bernsku, og mögnuðust í gegnum skólagönguna, sambandið, hjónabandið eða bara í gegnum samskipti við annað fólk.
Flóttinn frá sjálfum okkur felst m.a. í því að meta okkur út frá hinu ytra, en ekki innra verðmæti.
Okkar innra verðmæti helst nefnilega óbreytt ALLTAF! .. En við skiljum það ekki og náum ekki að komast þangað þegar við erum föst í að meta okkur út frá ytri aðstæðum, menntun, útliti, efnahag o.s.frv. - allt út frá hvernig aðrir sjá okkur.
Út frá þessum pælingum og út frá bók Geneen Roth um að komast heim til okkar sjálfra, fór ég því af stað með námskeiðið "Í kjörþyngd með kærleika" - en í raun fjallar námskeiðið ekki um vigtina, heldur um að komast á þann stað að hætta stríðinu við vigtina.
Kjörþyngdin er þó mikilvæg - alveg eins og við viljum vera í kjör aðstæðum. Kjöraðstæður okkar eru þokkalega breiður millivegur, - hættumörk þessa vegar eru á sitt hvorum vegarkantinum þegar við erum komin í OF eða VAN.
Þegar við erum komin í OF eða VAN erum við komin í sjálfskaðandi hegðun, t.d. eins og anorexíu (VAN) eða offitu (OF) Öll fíkn og áráttuhegðun er svona út fyrir vegarkantinn og það getur verið erfitt að komast aftur upp.
Þessi sjálfskaðandi hegðun er þó alls ekki alltaf mæld með vigt. Margir upplifa sig OF eða VAN á sálinni. Þú getur verið í "Kjörþyngd" með því að lifa á kaffi og sígarettum, eða eftir að hafa tekið einhvern duftkúr og það gerir þig ekki heilbrigðari en manneskjuna sem er 20 kg of þung.
Dapurleikinn og meðvirknin hverfur því miður ekki með kílóunum. Það sama gildir um anorexíusjúkling, þó að hann komist tímabundið í kjörþyngd þýðir ekki að sálin sé læknuð.
Þegar verð er að fara í kúra, átak og fleira erum við að þurrka upp poll sem er á gólfinu. Við náum að þurrka hann upp, en hann kemur nær undantekningalaust aftur - og verður jafnvel stærri.
Eftir sitja vonbrigði, skömm, upplifunin að hafa mistekist o.s.frv. Megrún og kúrar eru því gagnslausir og jafnvel skemmandi. Það VERÐUR að taka manneskjuna fyrir sem heild. Líkama og sál, - Líkaminn verður að vinna með huganum og öfugt.
En hvað á þá að gera ef að pollurinn kemur alltaf aftur? .. Þurrka meira, - já, það er ein aðferð, en "insanity is doing the same thing over and over again and expecting different results" .. Er það ekki svolítlil klikkun? ... Við sjáum pollinn hverfa, verðum hoppandi glöð, - stutt fix, - en svo er það búið - hann fer að myndast aftur.
Þá er kominn tími á að skoða hinn leka krana. Hér þarf að skoða lögmál orsaka og afleiðinga.
Að þurfa að standa í endalausu stríði við vigtina og hafa vigtina hreinlega á heilanum og upplifa skömm vegna þess að okkur tekst ekki að halda í horfinu, eða fara út í ofstjórnun þannig að við erum eins og herforingjar með svipu á okkur, er bara hreint ekkert í boði lengur.
Við verðum að gera við hinn leka krana, fá "pípara" í verkið með okkur, - laga okkar innri stíflur og skoða af hverju kraninn lekur? .. Var einhver sem rakst í hann? Gerðist eitthvað á leiðinni sem varð til þess að kraninn lak? ... Kranar geta lekið af mismunandi ástæðum alveg eins og við getum verið meðvirk, haft of - eða vanstjórn.
Við sjálf erum ekki vandamálið. Við sjálf erum ekki biluð. Heldur höfum við tileinkað okkur hegðun hins leka krana, - og við getum af-tileinkað okkur þessa hegðun. Endurprógramerað okkur til þess að við hættum að láta stjórnast af umhverfinu, láta mat stjórna lífi okkar, eða aðra fíkn.
Einhvers staðar, yfirleitt snemma á lífsleiðinni, höfum við farið að tileinka okkur eðlileg viðbrögð við óeðlilegu umhverfi. Óeðlilegum skömmum, vanvirðingu o.s.frv. Við þurfum að læra sem fullorðnir einstaklingar að taka ábyrgð á okkur sjálfum og þar að auki leiða okkar innra barn út úr þeim aðstæðum sem gerðu það að verkum að við týndum sjálfsmynd okkar. - Leiða barnið að speglinum, - sýna því hvað það er fallegt, yndislegt og óendanlega verðmætt - alveg eins og það er NÚNA.
Ekki eftir 10 kíló, ekki þegar það hefur lokið stúdentsprófi, ekki þegar það er komið með milljón í tekjur á mánuði .. barnið er akkúrat eins verðmætt og við fæðingu, NÚNA.
Það er gert með huglægum æfingum, staðhæfingum, með endurtekningum, með jákvæðni, með samvinnu, nýrri hugsun, samtakamætti líkama og hugsunar. Þetta er gert með trú, trú á þinn æðri mátt, hvaða nafni sem þú vilt kalla hann.
Þetta er grunnurinn að námskeiðinu sem ég er nú að fara að kenna fyrir konur, og viðtöl þegar hafin, sem ég kalla "Í kjörþyngd með meðvitund og kærleika" - en réttnefni væri eflaust
"Hættu stríðinu við sjálfa þig, taktu sjálfa þig í fangið og farðu að elska þig" ...
Ef þú elskar þig, virðir og treystir (trúlofast sjálfum/sjálfri þér) þá viltu þér, líkama þínum og sál, aðeins hið besta. Þú setur sjálfa/n þig í forgang, því að til að hjálpa barni þarftu að taka inn súrefnið fyrst fyrir sjálfa/n þig.
Þegar við "föttum" þetta og förum að lifa eftir því, þá getum við farið að lifa lífinu eins og okkur er ætlað að lifa því en ekki bara "þrauka" lífið eins og margir eru því miður að gera. Of-eða vanþyngd birtist bara stundum á yfirborðinu, - en andlegt ofbeldi er ekki síður alvarlegt en líkamlegt. Þess vegna er ekki skrítið þegar ein kona sagði við mig:
"Ég vildi að ég væri 150 kíló svo það sæist utan á mér að ég er í svo miklu stríði" ..
Við erum í stríði við okkur sjálf, hryðjuverkamenn á okkar eigin líkama og sál - hver er það sem talar oftast niður til okkar? - Hver er það sem býður leigjendum í höfuðið án húsaleigu? Hver er það sem leyfir sér að öfundast og tala illa um aðra, en vita það samt að það hefur engin áhrif á aðra bara mann sjálfan? ... Hver er það sem blekkir þig? ... Hver er þín stærsta hindrun í að ná árangri? ..
Of-eða vanstjórn hvort sem það er með mat, áfengi, eða öðrum flótta er oft aðeins skortur á nánd, skortur á útrás tilfinninga, skortur á eðlilegu, mannlegum og góðum samskiptum.
Stundum skortur á heiðarleika, og ekki síst heiðarleika við okkur sjálf.
Hér les Geneen Roth upp úr bók sinni, Women, Food and God.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
4.10.2011 | 08:35
Hamingjustuðullinn ...
Ég hef undanfarið verið að mæta fólki í viðtali, yfirleitt vegna þess að það vill bæta líf sitt. Það er að sjálfsögðu jákvætt skref að taka, að gera sér grein fyrir að eitthvað vantar upp á og viljinn til að bæta lífsgæði sín er jafnframt viljinn til að elska sig og virða.
Það kemur á óvart, og þó ekki, hversu margir eru að þrauka lífið en ekki lifa því. Það kemur ekki á óvart að því leyti að ég hef sjálf verið stödd nákvæmlega þar. Þá skoraði ég ekki hátt á hamingjuskalanum eða hamingjustuðlinum. Ég fór þá að vinna í MÉR, afla mér þekkingar, lærdóms og gera æfingar, hugleiða, stunda útiveru og hreyfing og fara með jákvæðar staðhæfingar sem eru mér orðnar jafn eðlilegar og að anda:
"Ég samþykki mig, ég virði mig, ég fyrirgef mér, ég elska mig" .... fyrst var þetta stirt, en svo kemur þetta eðlilega og árangurinn birtist í því að hamingju"hitamælirinn" hækkar og mér líður alltaf betur og betur. Við erum alltof mörg sem höfum ekki haft nógu gott sjálfstraust þrátt fyrir að hafa ÖLL hafsjó af hæfileikum, möguleikum og getu til að gera það sem hugur okkar og HJARTA vill. Við erum kannski ekki nógu dugleg að spyrja hjartað. Ekki nógu dugleg við að stoppa og spyrja okkur hvað það er sem við raunverulega viljum, og síðan að framkvæma það.
Framkvæmdin byrjar alltaf í smáum skrefum, en aðal málið er að byrja að hreyfast en ekki standa í stað.
Eins og fram kemur í blogginu sem ég skrifaði á undan, þá eru það lögmál árangurs að okkur verður að líka við okkur sjálf. Það er það sem kemur okkur á hreyfingu. "It moves us" .. sem getur þýtt að það hrærir við okkur, eða hreyfir okkur.
Ég er endalaust þakklát fyrir það sem ég hef lært að uppgötva; þ.e.a.s. mitt innra verðmæti. Innra verðmæti kemur þegar við förum að samþykkja okkur algjörlega án utanaðkomandi hluta, starfs, menntunar, þjóðfélagsstöðu, útlits o.s.frv. Það gerist ekki á einum degi, en það kemur stig fyrir stig.
Það gerist ekki bara með því að sitja kyrr og hugsa góðar hugsanir, en góðar hugsanir skaða ekki, en þeim verður að fylgja framkvæmd.
Framkvæmd sem felst í því að virða sig, líkama sinn og sál, því við erum ekki síður líkami en sál.
Þegar okkur líður vel í líkamanum þá fylgir sálin og öfugt.
Að öfunda aðra, tala illa um, baktala fólk - og neikvætt sjálfstal og neikvæðni almennt, hefur allt sömu áhrif, það brýtur okkur SJÁLF niður.
Góð samvera - útivist - náttúran - hreyfing og samtal eru hlutir sem skipta líka máli hvað varðar lífsgæðin.
Það er gott að vera ein/n við og við í fullvissunni um það að þú átt einhverja að sem þykir vænt um þig og þér þykir vænt um.
Við sem trúum á æðri mátt/Guð/innri mátt eða hvað sem þú vilt kalla það finnum það að við erum aldrei ein og það er notalegt að vita af því, en svo sannarlega þarf fólk á fólki að halda líka.
En hvað um það, það er hægt að losna úr gömlum farvegi - en það er aðeins ein manneskja sem getur tekið ákvörðun um það. Ef þú skorar lágt á hamingjuskalanum, þá þarftu að spyrja þig hverju þú getur breytt og hverju ekki og þá fara að taka skref að því að breyta, - og sætta þig við það sem er óbreytanlegt - og jafnvel bara umvefja það með ást og umhyggju.
Við höfum val um líkamlega fæðu og við höfum val um andlega fæðu.
Á sama hátt og við þekkjum hvað gerir okkur illt og er okkur vont líkamlega, þá ættum við að vanda okkur við hina andlegu fæðu. Eckhart Tolle furðar sig á því að fólk skuli borga peninga til að horfa á ofbeldismyndir, en vera samt andstæðingar ofbeldis. Það er "food for thought"
Við erum ekki ómissandi við að fylgjast með sorgar-og hryllingsfréttum sem gerast hér heima og útí heimi. Ef að það hefur vond áhrif okkur, við erum viðkvæm fyrir þeim, þá bætum við ekki heiminn - við að leggja okkur sjálf á vogarskál þeirra sem líður illa.
Það besta sem þú getur gert fyrir heiminn er að gæta að þér, huga að þér og líðan þinni.
Eftir því fleiri sem eru hamingjusamir og líður vel þá hækkar hamingjuskali heimsbyggðarinnar.
Ég setti hér til hliðar hamingjuskalapróf, taktu endilega þátt - 10 þýðir að þú ert hoppandi kát/ur og glöð/glaður nú eða bara 100% sátt/ur við þína stöðu, en 1 þá ertu virkilega ofan í "holunni" sem margir þekkja. það sér enginn hver þú ert, - en ef þú vilt skrifaðu þá gjarnan athugasemd og segðu frá þér, - og gjarnan ef þú kannt "hamingjuráð" til að deila með öðrum.
Hvar staðsetur þú þig í þessari mynd? -
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.10.2011 | 22:56
Kærleikslestin... þorir þú að koma með? .....
Sumir eru staðnaðir, fastir í hlutlausum gír, eða jafnvel bakkgír.
Brian Tracy lét mörg gullkorn falla og bar fram marga speki sl. fimmtudag í fyrirlestri sínum í Hörpu. Eitt af því sem hann gerði var að láta salinn koma með jákvæðar yfirlýsingar, til að leggja áherslu á jákvætt sjálfstal.
"I like my self" "I can do it" og fleira í þeim dúr. Hann lagði mikla áherslu á að þegar við færum með jákvæðar staðhæfingar færði það okkur áfram í lífinu, og að sjálfsögðu þarf að trúa á þessar staðhæfingar. Efinn og óttinn er það sem stöðvar. Elskan, eða kærleikurinn er andstæða óttans.
Brian sýndi á myndrænan hátt hvernig við færðumst áfram með jákvæðu staðhæfingunum, - hann lék lest og sagði síðan takfast "I like my self" - "I like my self" .. (prófið þetta endilega á stofugólfinu heima með hljóðum og öllu!) ..
Sjálfsvirðing og að meta eigið verðmæti er hluti af þessu, hluti af því að komast áfram í lífinu. Komast áfram á kærleikanum. Enginn sem talar fallega til sín og um aðra er fastur ofan í holunni sem við höfum öll tilhneygingu til að detta ofan í. Við komumst upp með jákvæðninni.
Við erum náttúrulega öll í sama blómapottinum - blómapottinum jörð, öll undir sama himni og öll líffræðilega tengd .. svo ef að einn fer að færast áfram ættum við öll að gera það. Eða a.mk. hafa vit á því að gera það ;-)
Henry Ford sagði: "If everyone is moving forward together, then success takes care of itself. "
Eitt sterkasta eldsneyti mannsins til að komast áfram er ástríðan - þegar við höfum ástríðu til einhvers og leyfum okkur að lifa hana erum við að elska okkur og virða, um leið og við gerum það sem hjartanu stendur næst. Hún skapar því rými fyrir kærleikann til okkar sjálfra og annarra.
Lifðu ástríðu þína, lifðu í kærleika til þín og annarra manna og sameiginlega náum við árangri.
Hoppaðu því upp í kærleikslestina, og farðu áfram að markmiðum þínum sem verða markmið okkar allra. ... kóperaðu þetta hjarta og settu í athugasemd ef þú vilt koma með í kærleikslestina!
(Vertu ekki að hafa áhyggjur af því að þetta sé væmið eða hallærislegt - hafðu hugrekki til að leika smá eins og barn, því lífið er leikur) ...komdu með!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.10.2011 | 15:40
Meira um flokkspólitík ... og svo fyrirmyndir!
"Þrjóska og barnalegt atferli hefur lengi einkennt stjórnarandstöðu þessa lands og gildir þá einu hvort hægri eða vinstri stjórnarandstaða hefur átt í hlut. Atferlið lýsir sér t.d. í því að vera sífellt á móti, láta flokkspólitík blinda sér sýn og reyna að hindra eða tefja framgang mála.
Ábyrgð stjórnmálamanna er mikil, svo og fjölmiðla sem stýra þjóðfélagsumræðunni."
Þetta skrifar Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur, en feitletrunin er mín.
Mér finnst rétt að vekja athygli á þessu, - eins og hún er að gera, hvaða fyrirmyndir við erum að gefa börnum þessa lands.
Er þessu kerfi viðbjargandi eða þarf að setja upp algjörlega nýtt kerfi eitthvað svipað og ég var að nefna í færslunni á undan þessari?
Er kerfið rót vandans? Eitthvað sem við höndlum ekki?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2011 | 11:59
"HELVÍTIS FLOKKING FLOKK" ...
Ég er að sjálfsögðu á móti svona ljótum fyrirsögnum, en nú brýtur nauðsyn lög.
Flokkakerfið er ekki fyrir Ísland, - við hljótum að fara að læra.
Flokkarnir virka þannig að flestir meðlimir verða meðvirkir með sínum flokki, - sama hvaða grautur er borinn á borð, sá sem tilheyrir flokknum líkar grauturinn en öðrum klígjar við. - Þannig virðist forritið virka, þó auðvitað séu þar undantekningar á.
Við erum of lítil of fá og of skyld og of fá til að FLOKKAkerfið virki ..
Insanity:
"Doing the same thing over and over again and expecting different results." Albert Einstein
Okkur gengur illa núna með núverandi stjórn - "face it" og okkur mun ganga illa með Sjálfsæðisflokk við stjórn "been there done that" .. (lærum vonandi af reynslunni)
En ég er ekki komin hér á bloggið bara til að gagnrýna, eða brjóta niður heldur að varpa fram einu lausninni sem ég sé í stöðunni:
Það þarf að reka Ísland eins og fyrirtæki, ráða fólk með menntun, þekkingu, reynslu, hæfni o.s.frv. í hvert embætti fyrir sig, - það þarf ekki eins marga eins og núverandi þingmenn og ráðherra.
Þess vegna væri hægt að fá hæft fólk með eldmóð og ástríðu að auki, og borga þeim líka fyrir.
Ráðningin í "störfin" verður að fara fram af erlendri ráðningarstofu, svo að frændi ráði ekki frænda og frænka ekki vinkonu.
Allir geta sótt um og leitað verður eftir mismunandi hæfileikum, reynslu, þekkingu o.s.frv. Í einhverjum tilfellum verður sérlega leitað eftir fólki sem er hæft í mannlegum samskiptum og getur sett sig í annarra spor. Leitast verði við að hafa sem fjölbreyttastan hóp, samsettan eins og reyndar er leitað eftir í góðum og sterkum fyrirtækjum!
Litið verði í öll horn, tekið tillit til náttúrunnar, jaðarhópa, gamla fólksins, barnanna sem erfa landið, og hvað hægt er að gera á Íslandi þannig að Ísland verði vörumerki heilbrigðis líkama og sálar.
Útópía ? - Nei, framtíðarsýn sem við ættum öll að leggjast á eitt um að hafa, og margar hendur (og hausar) geta unnið létt verk.
Eggjakast?
Köstum frekar rósum að hvert öðru - ilmurinn mun loða við hönd okkar og öll sitjum við uppi með rósailminn.
![]() |
Eggjum kastað í þingmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
27.9.2011 | 09:27
Gleði barna ..
Í gær byrjaði fyrsti hópurinn í Leiklistargleðismiðju Lausnarinnar, en það voru ellefu stelpur á aldrinum 9-10 ára. Ég fylgdis með þeim koma, sá Ingu Bjarnason taka á móti þeim og sá muninn á þeim eftir fyrsta skiptið, - og var það bara aldeilis frábært.
Hóparnir verða þrír alls, en í dag byrjar svo blandaður hópur stelpna og stráka, 11 - 13 ára, en við hækkuðum aldurinn upp í 13 þar sem 13 ára stelpa sem hafði verið áður hjá Ingu í Leiklist vildi svo gjarnan komast að, og getum við varla hugsað okkur betri meðmæli.
Það er dýrt að auglýsa og Lausnin grasrótarsamtök þar sem námskeiðisgjaldi er haldið í lágmarki, og meira að segja niðurgreitt af Velferðarsjóði barna, svo foreldrar hafa e.t.v. ekki heyrt af þessu gullna tækifæri til að styrkja börn sín.
Það eru enn nokkur pláss laus í smiðjuna sem hefst í dag, kl. 16:30, fyrir stráka og stelpur 11-13 ára, og á morgun 16:30 fyrir stráka 9-10 ára.
Hægt er að skrá börnin ef smellt er á þennan tengil: HÉR eða senda póst á nyjalausnin@lausnin.is
Frístundakort Reykjavíkur og Mosfellsbæjar er í fullu gildi hér ;-)
Nú þegar eineltisumræðan er í hámarki, þá er mikilvægt að huga að því að styrkja börnin, bæði til að standa með sjálfum sér og öðrum. Námskeiðið er í senn gleðismiðja og sjálfstyrking.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.9.2011 | 08:22
Leading with passion ...
Um bókina "Leading with Passion" - ég hef ekki lesið hana, en fékk þetta sent í tölvupósti í morgun og langaði að deila, vegna þess að það er svo margt gott í þessu. "Setjið ekki ljós yðar undir mæliker" ....
Þarna koma uppáhalds umræðuefnin mín fyrir, hugrekkið - að kasta af sér óttanum, neikvæð áhrif efans og áhrif hamlandi skoðana, vantrú á eigin getu og umhverfi sitt. Það er mikilvægt að leyfa sér að lifa af ástríðu .. Finna hvað vekur okkur gleði og áhuga og ganga þann veg ..
Láttu ljós þitt skína! .. Hef ekki tíma til að þýða þetta núna, geri það e.t.v. síðar ...
An excerpt from
Leading with Passion
by John J. Murphy
"Light a match in a dark room and watch as the light instantly overcomes the darkness. Observe the power and grace of that single, solitary flame dancing with life. Now light several candles or kindle a fire and experience the added warmth and comfort extending from that first, vulnerable flame through others. This is the heart and soul of leadership - the essence of inspiring others. It is about courageously casting off fear, doubt and limiting beliefs and giving people a sense of hope, optimism and accomplishment. It is about bringing light into a world of uncertainty and inspiring others to do the same. This is what we call passion, the fire within.
Passion is a heartfelt energy that flows through us, not from us. It fills our hearts when we allow it to and it inspires others when we share it. It is like sunlight flowing through a doorway that we have just opened. It was always there. It just needed to be accepted and embraced. Under the right conditions, this "flow" appears effortless, easy and graceful. It is doing what it is meant to do. It is reminding us that we are meant to be purposeful. We are meant to be positive. We are meant to be passionate. We feel this when we listen to and accept our calling in life. We feel it as inspiration when we open the door of resistance and let it in.
Inspiration springs forth when we allow ourselves to be "in-spirit," aligned with our true essence. Stop and think about it: When you feel truly passionate and inspired about someone or something, what frame of mind are you in? What are you willing to do? What kind of effort are you willing to put forth? How fearful are you? Chances are, you feel motivated to do whatever it takes, without fear or doubt, to turn your vision into reality. You grow in confidence. You believe you can do it. You are committed from the heart and soul.
The purpose of this book is to clarify and offer ten key factors for leading with passion and inspiring peak performance. These "essentials" serve to guide and remind leaders how they can "open the door" and facilitate flow. By practicing these essentials, you will tap the extraordinary potential in yourself and others and realize results you may never have dreamed possible. Look to any inspiring leader and you will see these key factors in action. Observe the best of the best and you will witness the power of passionate leadership. Make no mistake - leading with passion inspires world change. It is the only thing that ever really has."
Við erum öll leiðtogar, við erum það með því að vera fyrirmyndir, okkar eigin, börnun okkar og annarra, okkar nánustu og svo koll af kolli stækkar það ...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)