Færsluflokkur: Bloggar

Megi ljós þitt skína sérhvern dag - elsku systir og ljósvíkingur ... kvennafrídagur 24. október

Megi gæfan þig geyma

megi Guð þér færa sigurlag.

Megi sól lýsa þína leið

megi ljós þitt skína sérhvern dag.

Og bænar bið ég þér

að ávallt geymi þig Guð í hendi sér. 

(texti. Bjarni Stefán Konráðsson)

Þetta var lokalagið í messu Fríkirkjunnar í gærkvöldi, sem var meðal annars haldin til að fagna fengnum kvenréttindum og hvetja til enn meiri sóknar. Við sungum hvatningarsönginn "Systir sækjum á" -

Öll þessi "ásókn" er að sjálfsögðu gerð með þeim formerkjum að hún sé þágu jafnréttis, og jafnrétti er ekki einkamál kvenna. 

Það er engin skömm að láta ljós sitt skína, - en af einhverjum ástæðum hefur þeim fræjum stundum verið sáð.  "Hvað vilt þú upp á dekk?" .. "Hvað þykist þú vera?" 

Ég held að þegar einhver stígur fram, lendi hann eða hún oft í þessum aðstæðum, að upplifa mótstöðu.  Stundum er mótstaðan raunveruleg, en oft er hún í hausnum á viðkomandi.  Hún er komin áður en hann eða hún leggur af stað og það er óttinn sem veldur því.  Óttinn við að láta ljós sitt skína, óttinn við framkvæmd, óttinn við að sækja á og síðast en ekki síst. Óttinn við álit annarra

Það er því mikilvægast fyrir okkur systur að sleppa óttanum, rækta elskuna og fara að hafa trú á okkur sjálfum. Stærsta hindrun kvenna er að trúa því sem var sagt í fortíðinni, og leyfa því að hafa gildi enn (þrátt fyrir að það sé löngu komið fram yfir síðasta söludag).  

Trúa því forna sem sumir reyna að selja okkur í nútíðinni. Ef við trúum ekki neikvæðu röddunum, ef við tökum ekki gilda söguna - þar sem konur eru lægra launaðar fyrir sömu störf, í miklu færri ábyrgðar- og leiðtogastöðum en karlar, - ef við bara reiknum ekki  með því og samþykkjum það ekki,  förum við kannski að trúa á jafnrétti og frelsi.   

Ég tel það vera grundvallaratriði: "Að hafa trú á sjálfri sér" ..  Ef við höfum það ekki, hver ætti að hafa það?

"Faith or Fear" sagði Marie Fortune, þegar hún ræddi um kynferðisofbeldi, okkar er valið: "Faith or fear."  

Hugvekja mín, eða það sem ég hugsaði upphátt í kirkjunni í gær var m.a. út frá Davíðssálmi 23. þar sem stendur: 

"Jafnvel þótt ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt því að þú ert hjá mér" ... 

Þori ég, get ég, vil ég hvað? .. 

Ef við látum ljós okkar skína, - þá þýðir það að við erum að fylla okkur af ljósi lífsins, ljósinu sem okkur var gefið við fæðingu,  þegar við fæddumst í Guðs mynd.  Það er okkar að viðhalda ljósinu og við getum gengið í gegnum hvern dimman dalinn á fætur öðrum, og lýst þann dal.  Guð hefur nú þegar skaffað ljósið,  en það er okkar að láta það skína og það gerum við með því að halda því logandi. 

Höfum trú. 

Hættum að skammast okkar fyrir okkur sjálfar, hættum að barma okkur yfir fortíðinni og endurskrifum söguna, - stöndum upp úr, sækjum fram, verum leiðtogar -  leiðtogar í formi fyrirmynda,  því oftast er það eina leiðin.   Einu sinni máttu konur ekkert vera að stilla sér fram, en nú er það ekki bannað, ekki á Íslandi þó að það sé bannað þar sem þróunin/þroskinn er kominn skemmra á veg. 

Það er aðeins í huganum núna, og oftast í huganum á okkur sjálfum. Verum fyrirmyndir í að þykja vænt um okkur, verum fyrirmyndir í því að koma fram af heiðarleika og sanngirni.  Verum við sjálfar - þannig erum við bestu fyrirmyndirnar,  skömmumst okkur ekki fyrir hverjar við erum.  Ég ER og þú ERT og Guð sagði "Ég er" og það er alveg nóg og þannig er til-veran, að vera til. Við erum ekki nema hálf tilvera ef við felum ljósið okkar og leyfum því ekki að skína. 

Við erum öll verðmæt sköpun, sköpuð til að vera til.  Allt sem við lærum ofan á það, sem er uppbyggilegt, er bónus. 

Systir sækjum fram og látum ljós okkar skína, - það er ekkert að óttast - höfum trú, trú á frelsi, jafnrétti - bræðra- og systralagi. 

"Hver einn og einasti einstaklingur fæðist hér sem ljósvíkingur" ...Ég trúi því að allir hafi kraft og geti áhrif haft." ...  Vildi samt óska ég væri meira vakandi, stundum er ég sofandi" .. Allir eru ljósvíkingar í hjartanu á sér" ... (Mugison og Hjálmar) 

Höfum trú á frelsið, jafnréttið, okkur sjálf og lífið.  - Guð er  sameiginleg viska okkar allra (samviska) og ljósdropar þessarar visku eru svo sannarlega gefnir okkur,  en við verðum að ganga í meðvitund,  vera vakandi fyrir eigin ábyrgð.   

Systir, nú er komið að því að við tökum að okkur að vera víkingar - ljósvíkingar.

Hvað stoppar okkur?

"I´m something, I hope you think you´re something too.... sister remember your name" .. 

 


Smá Tarot lestur á laugardegi ...

 

Fyrirlovers-tarot-card.jpg mörgum árum fór ég að skoða Tarot spil, fór svo að leggja spil og las úr spilunum.  Þar sem við erum flest að glíma við svipuð vandamál, þá er ekkert skrítið að það sem lesið er passi vel, og svo er það þannig að hlustandinn heyrir það sem hann speglar sig í og tilheyrir honum, annað heyrir hann varla.

Svo neita ég því, að sjálfsögðu ekki, að ég hef næmni fyrir fólk og skynja stundum meira en hægt er að sjá með berum augum.

Það höfum við reyndar öll, ef við hlustum eftir því. 

Það sem kom mér á óvart þegar ég fór að skoða Tarot-spilin mín var að myndirnar voru margar beint upp úr Biblíunni, sumar mjög áberandi aðrar langsóttari. Biblían er auðvitað um allt milli himins og jarðar - og á himni og á jörðu reyndar líka.

Þetta spil: "The Lovers" þarf nú varla að útskýra mikið - þarna erum við mætt í aldingarðinn Eden með öllu (eða flestu) sem því tilheyrir. 

 

 

En hér ætla ég að tala aðeins um þetta spil:  "The Devil" - images.jpg

 Því að ég er ekki bara "menntuð" í Tarot, heldur líka í guðfræði og er meðferðaraðili hvað meðvirkni varðar.  En meðvirkni er eitt stærsta mein samfélagsins og ég er ekki í vafa að mikið af okkar vandamálum væru leyst ef að við værum ekki svona meðvirk. 

Sá/eða sú meðvirka lifir ekki fyrir sjálfa sig, eiginlega týnist og verður ósýnileg/ur og veit best hvað öllum er fyrir bestu - en gleymir sjálfri/sjálfum sér.  Athyglin er öll út á við og ekkert inn á við.

Dæmi: kona sem er svo upptekin af manninum sínum og að sinna hans þörfum, löngunum og væntingum að hún gleymir að spyrja sig um sínar væntingar, þrár, langanir.  Svo þegar það hefur gengið lengi, er hún oft hætt að sinna sér, virða sig og elska, og þá er makinn sem hana langaði svo að halda í farinn að koma fram við hana á sama hátt og hún kemur fram við sjálfa sig. - Af óvirðingu.

Ég get ekki farið í öll einkenni meðvirkni hér, - en ég ætla nú að fara að lesa í þetta spil DEVIL 

Þarna gæti eins staðið SJÁLFSKAPAR- VÍTI  

Þetta par er búið að koma sér í aðstæður þar sem það hlekkjar sig við  Djöful, eða einhvers konar ófreskju.  Það er ekki að reyna að komast í burtu, stendur bara rólegt og virðir tilveruna fyrir sér. 

Í raun er keðjan svo víð um hálsinn að hvor aðilinn um sig gæti smeygt keðjunni af sér. Spilið táknar því líka fíkn - fíkn sem heldur okkur niðri vegna eigin ákvarðana og vals. 

Fíkn sem er ásköpuð. 

Hún getur birst í öllum myndum. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra, býst við að flestir séu búnir að átta sig á hvað þetta þýðir, en spurningin er:  Hvað heldur þér niðri? - Eru það hlekkir sem þú heldur í eða halda þeir þér? - 

Það eru til ýmsar leiðir til að takast á við lífið, - samþykkja það sem við fáum ekki breytt og fara að elska það og gera það besta úr því,  breyta því sem við getum breytt.  

Í æðruleysisbæninni er Guð beðinn um að gefa okkur vit til að greina þarna á milli, - það má líka biðja Guð um að hjálpa sér í hvoru sem er; að breyta hlekkjum í blómsveiga og losa hlekki sem eru of þungir fyrir okkur að lyfta. 

- Prédikun og Tarotlestri lokið í dag -  Smile

 


Fegrunarráð mitt .... ekki að einhver hafi spurt ...

Hvert sem litið er, er fólk að gefa fegrunarráð - "nota þessa dropa" - "þetta krem - gel - gúrkusneiðar - maska - háralit - " .. allt hið besta mál (eða flest)..  -  sumt af þessu er að vísu ansi dýrt - 

cucumber2.jpg

En sem betur fer koma líka ráð,  þar sem ekki þarf að taka upp budduna - og auka e.t.v. enn meira vellíðan okkar, eina og að "ganga útí rigningunni - anda djúpt - drekka vatn - brosa" .. 

Ég tók eftir því í speglinum í morgun (ég er að verða fimmtug) að mér fannst ég fallegri en nokkru sinni fyrr (alveg satt) - ég er bara í nokkuð meðalholdum, ekkert hefur í raun breyst,  ekkert nema hvernig ég sé sjálfa mig.  

Í stað gagnrýni er kominn kærleikur og virðing. 

Áður leitað ég eftir göllum þegar ég leit í spegilinn, nú horfi ég á mig sem sköpun - sem listaverk og það eigum við öll að gera.  (Ég veit þetta er erfitt, það er búið að ala okkur upp í að trúa öðru). 

Ég hef undanfarið ár, unnið systematískt í því að taka inn gott andlegt fæði og forðast neikvæðni, og ef að fólk hefur verið mjög neikvætt hef ég í sumum tilfellum bara talað við það og sagt því að ég væri að vinna í sjálfri mér og ég fyndi til nekvæðninnar í sjálfri mér þegar það væri að bölsótast, eða kvarta, og hvort það væri til í að hlífa mér, því ég tímdi í raun ekki að hætta að umgangast það - eða skemmtilega hluta þess. -  Það virkar vel - það er framsetningin sem skiptir máli.  Ekki setja það fram í ásökunartón: "Þú ert neikvæð/ur" ..  Þá erum við "dead meat" .. 

Í raun er þetta bara að vekja okkar eigin neikvæðni, sem við e.t.v. viljum ekkert með hafa. 

Þetta virkar í raun í báðar áttir,  - sum vilja vera neikvæð - og finnst jákvæðir einstaklingar óþægilegir, fólk sem hlær mikið og hefur gaman, pirrar það - því sumum vill hreinlega (ómeðvitað) líða illa - eða hvað? ..  Finnst óþægilegt þegar því líður illa að aðrir séu glaðir.  Að sama skapi finnst mörgum óþægilegt að líða vel þegar öðrum líður illa, og halda að þeir geri gagn með því að líða illa með þeim. Ef það væri svoleiðis, þá ættum við að skríða ofan í holuna með þeim þunglyndu og leggjast þar, ég hef alveg verið í þessari holu, en ekki myndi ég vilja sjá að ég hefði skapað það ástand hjá öðrum að þeir yrðu þunglyndir líka! :-/ 

Nei - ég vil miklu frekar sjá að það sé glatt fólk í kringum mig, sjá að það er hægt að lifa þessu lífi lifandi en ekki bara sem einhverja þrautagöngu sem þarf að afplána.  Það dregur mig af stað, - en auðvitað má bjóða fram hendi og láta vita að við séum til staðar,  þegar "holubúinn" er tilbúin/n í hjálp.  Við verðum í raun að gera það, - og það er eina leiðin. (Nú er ég orðin aðeins of djúp). 

En nóg um það! - Ég var að tala um fegrunarráð, og þau liggja m.a. í þessu: 

  • Tala fallega til sjálfs sín (Mér þykir vænt um mig, samþykki mig, virði mig og fyrirgef mér - og er þakklát fyrir mig ...) -  Trúið mér, við stundum alveg nóg af neikvæðu sjálfstali og það er í raun svaka átök að snúa við - en ég mæli með þessu upphátt, setja minnismiða á spegilinn.
  • Dáumst að sjálfum okkur, hrósið fyrir það sem vel er gert en byggjum okkur upp ef miður fer, - lærið af því en ekki fara í sjálfsásökunargírin eða skömmina
  • Að sjálfsögðu tölum við líka fallega um og við náungann - forðumst skammir, ljót orð, leiðindi eins og heitan eldinn  - prófum að breyta neikvæðum athugasemdum sem brjóta niður í uppbyggilegar
  • Forðumst allan utanaðkomandi ljótleika - og verum HEIÐARLEG við okkur sjálf og aðra.
  • Elskum og virðum aldur okkar og elskum okkur skilyrðislaust ...
  • Munum að við erum öll eitt - öll jöfn og að Guð fer ekki í manngreinarálit ....

Þessi ráð eru örugglega fleiri, - jú - fara snemma að sofa, lesa uppbyggilegar bókmenntir, elska okkur sjálf, annað fólk og lífið allt -

Tökum síðan alla þessa punkta að ofan, og umbreytum því sem sagt er um andlegt fæði í líkamlegt fæði, - forðumst hið óholla, það sem gerir okkur vont,  það sem hefur neikvæð áhrif á heilsuna, við kunnum og vitum þetta allt ... Wink  ( .. ef við lesum grein um einhvern hrylling, - líður okkur eins og þegar við höfum borðað yfir okkur af einhverju sem gerir líkamanum vont) 

en besta fegrunarráðið af öllum: 

Gefðu þér gott faðmlag ...   

BINGÓ .. þú ert bjútífúl og verður bjútífúl! .. 

We are bjútífúl - no matter what "they" say ...  veljum okkur orðin sem við tökum til okkar, segjum nei takk við niðurbrjótandi umhverfi - og já takk við góðu og höldum áfram að vera falleg - sama hvað aðrir (lesist Marta María) eru að pípa .. 

 

 

  •  

Eins og hindin þráir vatnslindir ...

Ég las á Fésbókinni svo dásamlegan status - um raunir þriggja ára gutta, sem grét sáran yfir að fá ekki popp hjá mömmu sinni. 

Þetta var um sexleytið, en þriggjáringar eru yfirleitt orðnir pinku þreyttir og úrillir á þessum tíma dags, eins og flestir sem hafa alið upp eða umgengist börn vita.  Hann hefur ekki getað skilgreint tilfinningar sínar - eflaust verið orðinn pinku svangur og þá skiptir ekki öllu máli með hverju við fyllum í það tómarúm, nú eða bara saddur en fundið fyrir þreytunni en ekki kunnað að skilgreina hana, enda varla hægt að ætlast til þess af svo ungum snáða. - 

Ég er svo þakklát fyrir svona raunverulegar dæmisögur, - því ég er að vinna með konur/tilfinningar og mat .. þetta gildir auðvitað um karlmenn líka,  en við erum stundum  ekkert ósvipuð börnum þegar okkur líður illa og vantar huggun leitum við stundum í mat, þegar það sem í raun er  hungur í eitthvað allt annað ...

"Eins og hindin þráir vatnslindir þráir sál mín þig, ó Guð! .. " (sl.42)huggun.jpg

- En stundum ruglumst við í þránni og reynum að seðja þorsta sálarinnar með einhverju öðru en hún í raun þarfnast.  Mislesum eða skiljum ekki skilaboð sálarinnar, kannski vegna þess að þegar við vorum börn og grétum vegna þess að við vorum þreytt, eða okkur leið illa að enginn skildi okkur, enginn huggaði  - virti ekki eða kunni ekki á  þrá okkar eftir kærleika, ást, umhyggju, nánd og  því að tilheyra. Kannski var enginn til staðar, eða var of veikur til að vera til staðar?   Kannski  skiljum við sjálf þessa þrá í dag en reynum að deyfa hana með mat, eða flýja af hólmi með röngum meðölum - sem í raun gera okkur ekki gott. 

Guð er í þessu tilfelli eitthvað ósnertanlegt og óáþreifanlegt, - og við kunnum bara að róa okkur með mat, áfengi eða öðru sem er áþreifanlegt eða sem við getum mælt og upplifað verðmæti okkar með. 

Með vinnu, með því að sýna fram á dugnað og svo framvegis. En þannig er ekki hamingja okkar fengin. 

Hún er fyrst fengin þegar við náum að tengjast sjálfum okkur, vitið og viljinn slær í takt við hjartað. Með sjálfsþekkingu og styrkingu. Þannig að þegar við finnum til sorgar leitum við ekki huggunar með sefjun líkamans - heldur sálarinnar. 

Svoleiðis er það nú. 

Það þarf vissulega trú til, en trúin getur verið á hvað sem er sem við teljum að sefi sálina, - tónlist, náttúran, kærleikur, vístómurinn  - sem ég sjálf (vegna minnar trúar) tel bara vera Guð. 

Guð í sjálfum okkur og Guð í alheims geimi - eins og skáldið sagði. 

Nýtt námskeið hefst á þriðjudag, - verið velkomnar - ég er að bjóða þetta fyrir konur, en ef að næst í lágmark átta karlmenn sem vilja láta á það reyna,  er ég til í slaginn! .. 

En kíkið auðvitað líka á önnur námskeið Lausnarinnar: 

Huldufólkshelgi næstu helgi frá 21. - 23. október, - þar er heldur betur hægt að tengja sig náttúrunni - og farið í bæði andleg og líkamleg ferðalög. 

Lausn unga fólksins, - sem er námskeið sem hefst 6. nóvember, á sunnudegi, - en hvað er unga fólkið 13-15 ára að gera venjulega milli 14:00 og 16:00 á sunnudögum, - hvernig væri að efla sig, styrkja og fara í "Winner" bolinn - og fá smá pepp inn í skólavikuna? !!.. 

Meðvirkni-og samskiptanámskeið -  spurning um að sópa liðinu á biskupsstofu þangað? .. Uss, ekki segja neinum að ég hafi sagt þetta! Smile  ... (p.s. sumir segja að við séum öll "bisexual" - ég segi að við séum öll meðvirk, og það er mikilvægt að læra að þekkja meðvirkni sína "Love your enemy"). 

Hugleiðsluhópar - Lausnarmiðaðir kvenna - og karlahópar  ... þar sem mörg sem það hafa reynt hafa loksins fundið sér farveg, - eftir að hafa leitað margra leiða til að vinna t.d. úr erfiðum samskiptum, finna sér líf eftir skilnað,  eftir alls konar ofbeldi - eða bara að vera alin upp á pinku vanvirkum heimilum, eins og flestir voru .. a.m.k. á mínum aldri.  Oft hjá góðum foreldrum, það var ekki málið,  en þau kunnu kannski ekkert endilega uppeldisfræðina upp á 10! 

Leiklistargleðismiðja - er í gangi núna fyrir börn 10-13 ára og þvílík gleði og fjör í börnunum og ekki síður Ingu Bjarnason, leikstjóra sem hefur þann eiginleika að ná fram því besta í börnunum. 

Auk þess að hafa þetta í boði, - höfum við möguleika á að koma og halda tölur og fyrirlestra í fyrirtækjum, skólum, fyrir minni hópa - saumaklúbba ? .. Hafið bara samband og við svörum um hæl .. þið sjáið hvernig á heimasíðunni.  www.lausnin.is 

Mig er nú farið að langa í popp - enda klukkan orðin matartími! .. 


Siðbreyting ... - að hætta vondum vana og hefja góðan ..

Ég blogga óvenju mikið út frá námskeiðunum mínum "Í kjörþyngd með meðvitund og kærleika" þessa dagana, - þar sem endurtekninga er þörf þegar verið er að breyta "ósiðum" í siði. 

Í raun er um endurforritun að ræða - endurforritun þar sem við lærum jákvætt sjálfstal og uppbyggilega hegðun og ávana í stað niðurbrjótandi sjálfstals og niðurbrjótandi hegðunar og ávana. 

Ef við erum þannig stödd að við skorum lágt á lífshamingjuskalanum, þurfum við að skoða orsakir. Yfirleitt eru orsakirnar þær að við erum að bregðast við lífinu með lærðum viðbrögðum úr fortíðinni. Við höfum komið okkur upp ávana sem er okkur óhagstæður í mörgum tilfellum.  Þessi viðbrögð eru lærð allt frá bernsku og því þarf oft að rekja mikið upp. 

Einn af þessum ávana tengist því hvernig við umgöngumst mat. Einn af ávananum er að vera í megrun.  "Diet" á ensku. 

Megrunariðnaðinum hefur vaxið fiskur um hrygg - stækkar og stækkar og hvað er að gerast? Fólkið fitnar og fitnar! ..  

Þegar ég var stelpa borðaði ég soðinn fisk, kjöt, kartöflur, nautahakk, skyr o.s.frv. gosdrykkir voru algjör undantekning og allt sem hét sælgæti og snakk.  Nú hefur úrvalið stóraukist, miklu meira er um óhollan skyndibita, og of mikið er af afþreyingu sem stelur meðvitund okkar. Þegar við erum "meðvitundarlaus" þá eigum við á hættu að innbyrða meira af ruslfæði. Borða án þess að finna bragð. 

Megrun leiðir til sjálfshaturs og sjálfsásökunar. Við eigum ekki að þurfa að hata okkur til að elska okkur. 

Þegar við skoðum orsakir offitu þá er gott að skoða hvaða vana við höfum tileinkað okkur, hvaða það er í vana okkar sem veldur því að við borðum þó við séum ekki svöng,  borðum það sem er líkama okkar vont og leiðir jafnvel til gigtar eða sykursýki, sem eru algengir fylgikvillar offitu. 

Höfum í huga að við erum líkami, sál og hugur, - líkaminn hefur áhrif á hugann og öfugt. 

Forsendan fyrir því að við viljum vera í kjörþyngd þarf að vera rétt.  Forsendan þarf fyrst og fremst að vera að við viljum betri heilsu. Að við viljum elska okkur til betri helsu.

Vani verður til með endurtekningu, æfingin skapar meistarann.  Það tekur tíma að búa til nýjan sið, nýjan vana, en er það ekki þess virði ef að sá vani verðu til þess að við náum betri heilsu? 

Aðal vandamálið við vigtina er ekki bara um matinn. Trú okkar á lífið og virði þess að lifa lífinu lifandi birtast í umgengni við mat. Svo ef við erum að borða þegar við erum ekki svöng, eða leiðist, erum við í raun og veru flýja lífið, flýja tilfinningarnar.  Við gætum verið að segja: "Æ, þetta blessað líf, það er hvort sem er ekkert varið í það, svo ég ætla bara að fá mér mér mat hér og nú"..  Þetta þýðir að við höfum að hluta til gefist upp á lífinu, eða gefist upp á hluta af okkur sjálfum. 

Umgengni okkar við mat er eins og umgengni okkar við lífið sjálft. - Þegar við förum að elska okkur, virða og samþykkja, hættum við að hata okkur, óvirða, dæma, afneita - og bíta okkur (samviskubitið). Hættum að vinna hryðjuverk á eigin líkama og sál.

Leikum, hlæjum, dönsum og lifum af heilu hjarta og leyfum okkur að fylgja þessu hjarta þá kviknar lífsneistinn, - eldmóðurinn til að langa til að lifa lífinu lifandi! Horfðu á þessa fallegu veru í speglinum og elskaðu hana frá toppi til táar. Þessi vera ert þú, vertu þér nær - vera. Þitt eigið faðmlag er besta faðmlagið, faðmaðu þig sem barn og faðmaðu þig sem fullorðna manneskju, - því þú átt það skilið!

Þetta sem hér er skrifað og meira, er upprunnið að mestu í hugmyndafræði Geneen Roth, sem kynnir dyrnar út úr megrun, - þær felast fyrst og fremst í því að fara að stunda jákvætt sjálfstal, og að lifa með meðvitund og fara að hlusta á líkama sinn. Þegar við hlustum á líkamann og virðum, þá heyrum við að hann hvíslar: "gefðu mér það að borða sem gerir mig heilbrigðan - þá get ég borið þig í gegnum allt lífið,  frá fyrstu skrefum til þeirra hinstu - ekki gefa mér það sem gerir mig veikan eða mér líður illa af." 

We are what we repeatedly do. Excellence, then, is not an act, but a habit. (Aristotle)

Markmiðið með breyttum sið, nýrri leið er: sjálfstyrking, sjálfsþekking, heiðarleiki, lífsgleði, heilbrigði, KÆRLEIKUR! 

og þannig 

LIFUM við HEIL  

doorway-1.jpg

 

 


Orsakir eineltis

Ég sá frétt í DV um 11 ára stúlku sem var beitt einelti, - og var í raun komin út í örvæntingu þar sem hún vildi ekki lifa lengur. Slíkar fréttir eru að verða of algengar, ekki við fréttirnar að sakast, ekki við stúlkuna að sakast ... en við hvern er að sakast?  Er nóg að benda á þau börn sem beita einelti og segja: "Þarna er ástæðan?" - Eða er nóg að benda á skólann og segja "Þarna er ástæðan" ..  Orsökin er dýpri, - þeir sem beita einelti eru líka hluti afleiðingar, ekki það að þau eigi ekki að taka ábyrgð, alveg eins og hver og ein manneskja þarf að taka ábyrgð á sinni tilveru.  Við sem eldri erum þurfum þó að viðurkenna ábyrgð okkar á þeim sem eru ósjálfráða.  Við þurfum að taka ábyrgð því að það erum við sem upplýsum, við sem kennum, við sem virkjum o.s.frv.  Eineltismál eru ekki ný mál fyrir mér. Ég hef starfað í skólasamfélaginu, - nú síðast í grunnskóla í Reykjavík, þar sem voru inni á milli mjög illa særðir nemendur vegna eineltis, skólinn var í einu orði sagt "Helvíti" og skiptir þá engu máli um hvaða skóla er að ræða. Þau voru í sumum tilfellum að mæta í 2. eða 3. skólann.  Oft var eineltið vegna þess að þau voru "öðruvísi" - of feit, of mjó, of lítil, of stór,  jafnvel vildu fara sínar leiðir, sköruðu fram úr o.s.frv. en það þolir samfélagið oft illa sem hefur tilhneygingu til að steypa alla í sama mótið, meðvitað eða ómeðvitað.  

Einelti er ein birtingarmynd sjúks samfélags. Við þurfum að skoða orsökina, til að koma í veg fyrir og skilja afleiðingarnar. Skoða hvaða fyrirmyndir eru í þjóðfélaginu (leiðtogar -fjölmiðlar- foreldrar-alþingi- yfirvöld) skoða hvernig við, sem eigum að teljast fullorðin, tölum saman á netmiðlum og við eldhúsborðið heima. Hvaða skilaboð erum við að senda börnunum? Skoða hvaða andlega efni er verið að næra börnin með. Ég veit að sú skoðun leiðir ýmislegt óskemmtilegt í ljós. Eftir höfðinu dansa limirnir. Það þarf að verða viðsnúningur - algjör U beygja í okkar eigin framkomu við hvert annað og líti nú hver í eigin barm. Til er ég!

Ein mikilvægasta lexía sem ég hef fengið um ævina er að skilja eigið ofbeldi, - í fyrsta lagi ofbeldið sem ég beitti sjálfa mig og t.d. niðurrífandi sjálfstal sem við notum öll, enda erum við oft í raun okkar stærstu óvinir,- og í öðru lagi... þegar ég, í flestum tilfellum ómeðvitað, beitti aðra ofbeldi - þó það hafi ekki verið í formi barsmíða (dæmi: að vera fúl útí afgreiðslumanninn í Bónus, vegna eigin vanlíðunar eða þreytu, segja eitthvað sárt við börnin sín vegna sömu orsaka, eitthvað sem við ætluðum ekkert að gera en gerum samt) þá  í formi orða eða þagnar.

Þögn getur líka verið birtingarmynd ofbeldis, eða það að við samþykkjum ofbeldi annarra. Þegar þagað er yfir málum þegar við ættum að tala - og við höfum heldur betur orðið vör við það í okkar samfélagi.

"Um leið og sleppum tökum af alverstu óvinunum: skömm og ótta, sleppa þeir óvinir tökunum af okkur." (þetta í gæsalöppum er frá Neale Donald Walsch).  

Orsakir eineltis eru m.a. veikar fyrirmyndir,  lélegt sjálfsmat og lítil sjálfsvirðing (eða fölsk sjálfsvirðing sem felst í ytra verðmætamati), upphafning á kostnað annarra, ótti við að vera sá sem lagður er í einelti (betra að fylgja múgnum) o.s.frv. 

Sá eða sú sem er í alvöru sterkur eða sterk leggur ekki í einelti.  

Einelti er form veikleika, veikleika sem á rætur í veikum fyrirmyndum. 


Somewhere is here ...

 


"Friður sé með yður" ... og Davíð, Sigmundi Davíð, Jóhönnu, Bjarna, Þór Saari, Friðriki Þór, Sigurjóni, Steingrími J., Jóni Gnarr, Ólafi Ragnari o.s.videre ...

.... og Guðrúnu Axfjörð og öllum öðru forystufólki ungliðahreyfinga, -  bætið endilega við þeim sem þið óskið friðar þarna úr fyrirsögn, - ég held ég hafi munað eftir forystumönnum stjórnmálaflokkanna, ritstjóra Moggans - borgarstjóra og forseta - en auðvitað eigum við öll heima þarna og allir leiðtogar (áhrifamenn - og konur þjóðarinnar) 

Ég sá grínmynd af Davíð í fyrradag og grínmynd af Jóhönnu í morgun, það var sannleikskorn til í þeim báðum. Allt Davíð að kenna og Allt Jóhönnu að kenna.  The Blaming game continues. En ég sé bara engan árangur af þessum ásökunum,  háði, níði, skítkasti o.s.frv. - ég sé ekki að náist árangur með stríði.  Í skásta falli einhvers konar "Win - Lose situation" - Hvernig væri að við stefndum á "Win - Win situation?" .. Er það hægt, eða er a.m.k. hægt að sjá fyrir sér fleiri ánægða (friðsæla) en ella? ..   

Friðurinn byrjar innra með okkur,  þaðan stækkar hringurinn út til fjölskyldu, vina og annara í okkar samfélagi, þaðan fer hann út um allt land, síðan út í heim og vonandi út í alheim.

Hvernig væri að við færum að breyta um taktík, í staðinn fyrir að skrifa illa um, tala niður til, hæðast og rægja þau sem eru okkur annarrar skoðunar í pólitík, að óska þeim friðar og senda þeim kærleiksbréf. 

Skreyta myndir þeirra með hjörtum (svona til að fara út í extreme) og reyna að setja okkur í þeirra spor? - 

Þarf pólitíkin virkilega að snúast um það að skrifa pistla um heimsku Jóhönnu eða birta hæðnisorð og myndir um hana. Þarf pólitíkin að snúast um að rægja Davíð og gera grín að mataræði Sigmundar Davíðs? - Ég nenni ekki að halda áfram svona. 

Föttum við  ekki, fullorðið fólk,  að við erum að búa til fyrirmyndir fyrir börnin í samfélaginu, fyrirmyndir um hvernig koma eigi fram við fólk andstæðrar skoðunar? - Jafnvel þó við virðum ekki þessa skoðun, eða séum henni algjörlega andnúin þá í öllum tilfellum verðum við að virða að hver manneskja hefur sitt manngildi, - burtséð frá pólitík.  Hún á fjölskyldu, hún á vini og hún á sál - sem örugglega vill vel. 

Ég held að ef við höldum áfram að senda eiturpílur í fólk þá gangi því verr að vinna vinnuna sína!  Allir hafa eitthvað að gefa, og það er sannleikur í máli þeirra allra.  Þetta er ekkert svart hvítt. 

Prófum að blogga/tala á uppbyggilegan hátt um það sem okkur liggur á hjarta .. 

Friður sé með okkur öllum.

 

 


mbl.is John væri ekki ánægður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30 hafa svarað lífshamingjukönnun ;-)

10% (3 atkvæði)  - 10
10% (3 atkvæði) - 9
23% (7 atkvæði) - 8
10% (3 atkvæði) - 7
16% (5 atkvæði) - 6
6% (2 atkvæði) - 5
10% (3 atkvæði) - 4
6% (2 atkvæði) - 3
3% (1 atkvæði) - 2
3% (1 atkvæði) - 1

 Ég myndi segja að það að vera stödd undir 6 væri ekki nógu gott, en það eru 14 - eða tæpur helmingur svarenda.  Það er gleðilegt að 3 upplifa sig 100% sátta eða hamingjusama, 3 90% og 7 80% .. 7 er ekki svo slæmt heldur. 

Þegar við horfum á hamingju okkar eða velferð þá er margt sem spilar inn í;  samfélag, heilsa, hjúskaparstaða/fjölskylduhagir, efnahagur og starfsvettvangur, svo ég nefni stærstu þættina, sem eiga síðan undirflokka. 

Viðhorf okkar og æðruleysi skiptir miklu máli, - þ.e.a.s. hvað við látum hafa áhrif á okkur og hvað ekki. 

Það er mikilvægt að tileinka sér það að sogast ekki inn í tilfinningalíf annarra, þ.e.a.s. forðast t.d. mjög neikvæðar manneskjur, vegna þess að þær kveikja e.t.v. á neikvæðninni sem blundar í okkur sjálfum.  

Við getum valið okkur vini en ekki fjölskyldu, - og stundum er ekkert í boði að ganga í burtu, - ekki frá fjölskydlu, ekki úr starfi - o.s.frv.  Stundum er það vegna ábyrgðar, t.d. ósjálfráða einstaklingum eða vegna þess að við erum föst efnahagslega og þá er eina leiðin að styrkja sjálfan sig, láta jáið  verða sterkari en nei-ið, þannig að "ljósið sigri myrkrið" ..  en ekki að það fari hina leiðina að við fylgjum hinum, sem er e.t.v. þunglyndur.  Skapferli er nefnilega smitandi, - líka þunglyndi. 

Það er mikilvægt líka að þegar að við umgöngumst þunglynda manneskju að skríða ekki ofan í holuna með henni, heldur standa á bakkanum og hvetja hana upp úr. - Ekki með því að kalla: "Komdu þér uppúr" .. (það virkar algjörlega öfugt) - heldur einmitt með því að vera ljósið á bakkanum,  sýna fram á  með okkar hegðun, með okkar lífi að lífið sé þess virði að lifa því. 

Ég hef fundið ýmis "tæki" sem auka lífshamingjuna: 

  • Lesa góðar bækur
  • Hlusta á góða fyrirlesara, bæði í raun og á youtube
  • stunda útivist, anda að mér frísku lofti (hvernig sem viðrar)
  • upplifa náttúruna
  • skoða umhverfið með jákvæðum hætti (draga fram það sem mér finnst fallegt)
  • veita því sem ég er þakklát fyrir athygli og þakka hið hversdagslega
  • skrifa niður það sem veitir mér gleði og hefur veitt mér gleði í gegnum lífið
  • kalla á vini og eiga stundir saman - ganga saman
  • stunda hugleiðslu, þar sem ég næ tengingu við sjálfa mig 
  • hlusta á fallega tónlist
  • leika sér ;-)
  • horfa á myndir sem eru fyndnar 
  • dæma mig ekki of hart og fyrirgefa mér ef ég geri mistök
  • vera heiðarleg og fylgja eigin sannfæringu
  • muna eftir að fara i réttan "bol" á morgnana - (ekki bolinn sem á stendur "fórnarlamb" ;-))
  • forðast neikvæðar umræður og að taka þátt í þeim
  • tala fallega um náungann og sjálfa mig 
  • ..

Það er auðvitað fleira í þessum pakka ;-) ..  gæti sett inn fleiri punkta ... vonandi ná þessi 50% að vinna sig upp skalann,  því þetta er víst allt á okkar eigin ábyrgð.  Jafnvel þó að vondir hlutir komi utan að, -  alltaf er eitthvað gott sem er að gerast líka og þess meiri ástæða að veita því athygli.

Það er svo margt sem við tökum sem sjálfsögðum hlut, - þar til að við eigum það ekki lengur - 

Við hér á Íslandi lítum á það sem sjálfsagðan hlut að geta drukkið vatn úr krana, farið í heitt bað þegar okkur dettur það í hug, jafnvel 3svar á dag, að búa í friðsælu landi .. o.s.frv.  

Það er SVO gott að skrifa niður þakklætislista á hverjum degi, - og vittu til (já prófaðu það) að það sem þú ert þakklát/ur fyrir fer að vaxa.  Annar listi, er gleðilistinn, - listi yfir hvað gerir þig glaða/n.

Ef þú hugsar til baka í líf þitt, hvenær varstu glöðust/glaðastur og hvað er það sem veldur því?

Er það stund með fjölskyldunni í útilegu, - þar sem allir sátu við varðeldinn og sungu "fram í heiðanna ró" .. ? --  ;-) ..    

Öll eigum við okkar gleði-móment eða augnablik, flestir foreldrar upplifa þessi augnablik bæði við fæðingu barna sinna og svo þegar börnunum gengur vel, ná árangri í því sem þau eru að taka sér fyrir hendur o.s.frv.  Í raun er "stolt" okkar foreldranna miklu frekar það að við samgleðjumst börnum okkar og ég er hætt að segja "ég er stolt af þér" .. því að mér finnst stolt ekkert gott orð.  Ég er bara sam-glöð þegar að einhver, líka aðrir en börnin mín eru glöð með sitt.  

Þetta var s.s. morgunpistillinn, - ég er mjög glöð núna því ég var að sækja stelpuna mína út á flugvöll í morgun og hún var ánægð með fríið sitt. - Það var gaman að sjá Simba voffa fagna "mömmu" sinni.  

lovetrain.jpgSet hér inn mynd af "Love Train" .. lestinni sem við höfum öll tækifæri til að hoppa upp í hvenær sem er og hvernig sem okkur líður -  hún er alltaf til taks. 

Gleðifréttirnar eru .. svona í lokin .. að rúmlega 50% eru yfir miðjunni í hamingjuhitamælinum.

Spurning hvort að ekki sé hægt að bæta "dashi" af kærleika út í alheiminn - og sjá hvort að hitinn rís ekki ;-)  

"Surely the earth can be saved by all the people who insist on love."
- Alice Walker -

 


Guð/Viskan

Það skal tekið fram að ég hef þá trú á þeim sem lesa eftirfarandi að þegar þeir sjái fyrir sér Guð séu þeir ekki enn með heimsmyndina sem var uppi á ritunartíma Biblíunnar, að þeir hafi þroskast fram á 21. öldina, og að guðfræðin ætti að hafa þroskast með - alveg eins og vísindi, líffræði, félagsfræði og annað hefur þroskast.  Guð er eitthvað sem er óbreytilegt, - en okkar mynd breytist með aukinni þekkingu í takt við annað í heiminum. 

Varðandi Biblíuna og að kenna börnum: 

Ég hef nú hugsað það oft, en ég held að ég hafi ekki sagt það upphátt - að Biblían er full flókin fyrir börn, - og í henni textar sem eru alls ekki við hæfi barna og reyndar ekki við hæfi annarra sálna (heilaþveginna eða illa upplýstra) sem taka allt bókstaflega, eins og dæmin sanna.  (Þegar ég tala um slíkt, þá er ég að tala um hvernig textar eru m.a. brúkaðir til fordæmingar á fólki eða til að sýna fram á ómögulegan Guð - sem er þá fenginn að láni úr mörgþúsundára gamalli heimsmynd). 

Það er ekki nóg að guðfræðingar eða vel lesið fólk viti að ákveðnir textar séu mýtur eða allegóriur, - því að ef að leikmaður, fólkið sem áður var minnst á - hvað þá barn les, þá les barnið að sjálfsögðu bókstaflega.

Endurtek: Mér finnst í raun merkilegt, miðað við hvað vísindin, líffræðin, félagsfræðin o.fl. hefur þróast hvað guðfræðin hefur lítið þróast - (þroskast). Tímarnir breytast og mennirnir með og þá hugmyndir manna um Guð, - en vissulega er Guð óbreytanlegur.  

það er sjálfsagt að miðla því sem uppbyggilegt er til barnanna: - um trú von og kærleikann, - fallega sálma - fallega texta - um sannleikann sem mun gera okkur frjáls o.fl. 

Besta kennslan fyrir börnin er það er að lifa fallegu lífi sjálf, sýna okkur sjálfum og öðrum elsku, virðingu og kunna að fyrirgefa okkur sjálfum og öðrum, - elska náungann eins og sjálf okkur - koma fram við aðra eins og við viljum að þeir komi fram við okkur og þá verðum við líka að vilja koma fallega fram við okkur sjálf, -  þannig erum við bestar fyrirmyndir.

Fyrirmyndin þarf að vera einlæg, heil og sönn, - við verðum líka að sýna tilfinningar, sýna að við getum grátið, gert mistök og tekið á þeim.  Ef við sýnum börnunum falska fyrirmynd fá þau fölsk skilaboð og þannig förum við af vegi sannleikans. 

Ég held að ef við sameinuðumst um að tala um "Viskuna" sem Guð, - vegna þess að Guð er orðið svo neikvætt hlaðið hugtak hjá mörgum manneskjum, myndu fleiri vera tilbúnir til að átta sig á að við erum ein sál, bara týndar sálir leitandi að sjálfum okkur. 

Mikið af textunum "meika líka meira sens" við það að breyta orðinu Guð í Viskan. 

"Fíflið segir: Guð er ekki til" ----  við sem trúum á Guð, getum játast þessu, en sá sem sér Guð sem einhvern "ímyndaðan kall" sem hann setur á sama stall og spaghetti skrímslið .. hlær auðvitað að þessu. 

Ef við útskýrðum nú fyrir honum að það sem við tölum um með Guð sé í raun Viskan. 

"Fíflið segir: Viskan er ekki til" ... myndi sá hinn sami kinka kolli við þessa staðhæfingu.

Fyrir mér er Viskan og Guð eitt og hið sama.  

Óvitar vita ekki alltaf hvað þeim er fyrir bestu, á meðan þeir eru börn þarf að hjálpa þeim og kenna þeim hvað er fyrir bestu.  "Við höfum vit /visku fyrir þeim." .. Síðan þegar við förum að þroskast og fá ábyrgð þá ættum við að hafa vit/viskuna, en stundum og oftast fjarlægjumst við hana, vegna þess að þeir sem eru í kringum okkur eru líka fjarlægir henni.  Okkur vantar fyrirmyndirnar.  Einhvers staðar á leiðinni tapaðist hún niður.

En fagnaðarerindið er þá í raun og veru: 

Við höfum Viskuna/Guð, - við fæddumst með hana, hún er innra með okkur - en við notum hana ekki þegar við höfum fjarlægst hana

Hvernig höfum við fjarlægst hana? 

Við vitum hvað er okkur hollast, en við gerum það samt ekki, við leitum í bæði óhollan mat og óhollt andlegt fæði - oft til að særa okkur, oft til að flýja okkur sjálf, tilfinningar okkar og þá viskuna.

Fjarlægðin frá viskunni er jafn vond og jafn mikil og fjarlægðin frá okkur sjálfum.  Við náum fyrst árangri þegar við náum að hætta að flýja viskuna, hætta að flýja okkur sjálf og tilfinningar okkar, sem eru partur viskunnar.  

Við hljótum öll að vilja lifa í heimi friðar, elsku og kærleika, en hvað gerist þegar viskan er yfirgefin?

Við förum að fremja hryðjuverk - á okkur sjálfum og þeim sem eru í kringum okkur.  Ekki vegna þess að við viljum ekki vera góð, - heldur vegna fjarlægðarinnar við viskuna.  

Við vitum að ljót orð byggja ekki upp heldur brjóta niður, samt notum við þau

Við vitum að reykingar eru vondar fyrir líkamann samt reykjum við 

Við vitum að sumt sem við segjum særir fólk, samt særum við fólk 

Við tölum niður til okkar sjálfra - en vitum að það brýtur okkur bara meira niður 

Við stundum óhóf og ofneyslu en vitum að það er vont fyrir okkur 

Við vanrækjum okkur og vannærum en vitum að það er vont fyrir okkur 

Við þurfum að leyfa viskunni að leiða okkur á veg hennar, veg sannleikans og vegur sannleikans er allt annað en vegur blekkingar .. 

Ég held að Jesús hafi verið að segja þetta, nákvæmlega þetta -  

Því hvað er það annað en sannleikurinn sem mun gera okkur frjáls, þegar við förum að játa hvar við stöndum gagnvart viskunni og biðja hana um að koma til móts við okkur ef við höfum týnt henni, týnt okkur sjálfum. 

Meðvitund um okkur sjálf, sjálfsþekking, meðvitund um viskuna í okkur og að tengjast okkur sjálfum, elska og virða er fyrsta skrefið .... 

cappuccino.jpg Góðan dag heimur! .. I smell coffee ... 

 

 

 

 

 

 

Þessi færsla er m.a. innblástur frá Eckhart Tolle: 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband