7.2.2017 | 12:12
Hamingjan hangir á þvottasnúrunni ..
HAMINGJAN HANGIR ..
Forsaga: Ég þvoði af rúmunum einn sumardaginn fyrsta, sem er nú ekki alveg í frásögur færandi, en þegar ég var að hengja lökin og sængurverin upp - og fylgdist með þeim blakta - um leið og fuglarnir á Sólheimum sungu morgunsönginn, leið mér svo ótrúlega vel. Ég fór að ræða þessa vellíðan við samstarfskonu mína, og þá sagði hún einfaldlega: "Já þetta er hamingjan" ..
Hamingjan hangir á þvottasnúrunni.
Hún blaktir í vindinum
og það tekur í fúnar tréklemmur
sem hafa staðið af sér veturinn.
Ég anda djúpt
og hlusta á lökin taka undir
fuglasönginn.
Mikið er gott að vera hér
við þvottasnúrurnar
þar sem hamingjan hangir.
Jóhanna Magnúsdóttir - vorið 2016
Athugasemdir
Gott hja þér Jóhanna mín,en ég vissi ekki að þú værir farin þaðan (Sólheimum),en Tobbý sagði mér það.Ég fór með henni upp á Akranes að heimsækja 93 ára ekkjumann Auðar frænku okkar. Sá er sprækur kallinn og yrkir enn um mikilfengleg þess einfalda,sem við sjáum en horfum ekki á.Mb.Kv.
Helga Kristjánsdóttir, 7.2.2017 kl. 16:09
Þakka þér kveðjuna Helga, jú, hætti á Sólheimum 1. júní 2016, og fór að leysa af í Skálholtsprestakalli frá 1. september sama ár og er sett þar í embætti til 4. júní 2017. - Svo er ég að flytja í Hveragerði í vor.
Góð setning "Horfum en sjáum ekki" .. það er svo satt.
Kær kveðja, Jóhanna
Jóhanna Magnúsdóttir, 8.2.2017 kl. 10:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.