Bentu á þann sem að þér þykir bestur ... biskup!

Sigríður vill verða biskup  18. 1. 2012

Kristján Valur vill verða biskup 19. 1. 2012 

Sigurður Árni vill verða biskup 20. 1. 2012

Þórir Jökull vill verða biskup 25. 1. 2012 

Hrókur vill verða biskup 29. 1. 2012

Agnes vill verða biskup 29. 1. 2012

Þórhallur vill verða biskup 31. 1. 2012 

Þarna er um sex alvöru framboð að ræða, en eflaust á þetta fólk það sameiginlegt að vera hrókar alls fagnaðarerindis, eða hvað? 

Ef þú mættir kjósa biskup þjóðkirkjunnar,  hver af þessum frambjóðendum hlyti atkvæði þitt? 

Þú getur tekið þátt í könnunninni hér á síðunni! 

(þau sem eru með kosningarétt mega að sjálfsögðu líka greiða atkvæði í þessari skoðanakönnun). 

Til gamans; við erum nokkuð mörg, t.d. allir guðfræðingar með embættisgengi sem mættum bjóða okkur fram en EKKI kjósa! ;-) 

Bætt við 18:30 

Enginn verður óbarinn biskup! 


mbl.is Þórhallur gefur kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Sigurður Árni og Þórhallur. Hugsanlega þó meira Þórhallur.

En þitt?

Hrönn Sigurðardóttir, 31.1.2012 kl. 14:19

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Mér sýnist mikil hreinsun/siðbót vera framundan í þjóðkirkjunni og finnst kominn tími til að fá kvenmann í "húsverkin" - þetta hefur svolítið slompast hjá körlunum -  og treysti Sigríði Guðmars best til að hreinsa aðeins til í kirkjunni, framfylgja reglugerðum og áætlunum og standa með náunganum.  Hún hefur verið leiðtogi að þessu leyti í þó nokkurn tíma, en því miður gæti það haft slæm áhrif á hennar stöðu - einmitt það að mótmæla ríkjandi yfirstjórn, hvað þá að standa með sjálfri sér (sem við erum nú alltaf að rembast við að kenna hvort öðru)  eða náunga sínum. - Hún hefur sagt að hún bjóði sig fram tímabundið.  Mér finnst hún skynja vel þá stöðu sem kirkjan er í og þörfina fyrir breytingu í átt til nútímans, en um leið heldur hún í ákveðin grunngildi sem auðvitað skipta máli. 

Hlutverk biskups er margþætt, en í stórum dráttum er hann hirðir hirðanna, svo að prestarnir sem kjósa hann verða að vera sáttir -  og svo andlit þjóðkirkjunnar út á við, -  þar vil ég gjarnan hafa konu, - því það eru mikilvæg skilaboð inn í jafnréttisumræðuna. -  

Ég þekki frambjóðendur misvel, en ég er nokkuð viss um að þau eru öll öðlingar! 

Ég tékkaði nú á listanum yfir guðfræðinga, presta og djákna sem studdu jafna vígslu samkynhneigðra, - en þar eru ekki öll biskupsefnin - þó ég þekki ekki ástæður þess að þau eru það ekki, því þessi listi var mjög vel auglýstur. -  Þetta er mál sem mér fannst t.d. kirkjan (yfirstjórn) ætti að eiga frumkvæði að, en þar var ekki áhugi. 

"Tæplega eitt hundrað prestar, djáknar og guðfræðingar sem starfa á vettvangi kirkjunnar og lögðu lóð á vogarskálarnar við umfjöllun og afgreiðslu um ein hjúskaparlög fyrir ómetanlegt framlag í þágu mannréttinda samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender-fólks á Íslandi."

Dr. Sigríður Guðmarsdóttir veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd hópsins.

Samtökin 78 eru hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgender fólks á Íslandi.

Viðtakendur:

1. Sr. Aðalsteinn Þorvaldsson, sóknarprestur Setbergsprestakalli

2. Sr. Agnes M. Sigurðardóttir, prófastur Vestfjarðaprófastdæmi

3. Sr. Arna Grétarsdóttir, sérþjónustuprestur, Noregi

4. Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor, Háskóla Íslands

5. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, emerita, Kópavogi

6. Sr. Auður Inga Einarsdóttir, heimilisprestur á Grund

7. Sr. Axel Árnason Njarðvík, héraðsprestur, Suðurprófastdæmi

8. Sr. Ágúst Einarsson, sérþjónustuprestur, Svíþjóð

9. Ármann Hákon Gunnarsson, djákni, Vídalínskirkju

10. Sr. Árni Svanur Daníelsson, verkefnisstjóri, Biskupsstofu

11. Sr. Ása Björk Ólafsdóttir, verðandi sóknarprestur í Kells á Írlandi

12. Sr. Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, sóknarprestur, Bíldudals- og Tálknafjarðarprestakalli

13. Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur, Þorlákshafnarprestakalli

14. Sr. Bára Friðriksdóttir, sóknarprestur Tjarnaprestakalli

15. Sr. Birgir Ásgeirsson, prestur, Hallgrímsprestakalli

16. Sr. Bjarni Karlsson, sóknarprestur, Laugarnesprestakalli

17. Sr. Bolli Pétur Bollason, sóknarprestur, Laufásprestakalli

18. Sr. Bragi Jóhann Ingibergsson, sóknarprestur Víðistaðaprestakalli

19. Sr. Bragi Skúlason, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

20. Sr. Bryndís Valbjarnardóttir, prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík

21. Sr. Carlos Ari Ferrer, kennari, Reykjavík

22. Sr. Cecil Haraldsson, sóknarprestur Seyðisfjarðarprestakalli

23. Sr. Dalla Þórðardóttir, prófastur Húnavatns- og Skagafjarðarprófastdæmi

24. Sr. Daniel Mueller Thor, Reykhólum

25. Sr. Einar Eyjólfsson, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

26. Sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli

27. Sr. Elínborg Gísladóttir, sóknarprestur, Grindavíkurprestakalli

28. Sr. Erla Guðmundsdóttir, prestur, Keflavíkurprestakalli

29. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson, sóknarprestur, Holtsprestakalli í Önundarfirði

30. Sr. Guðbjörg Arnardóttir, sóknarprestur, Oddaprestakalli

31. Sr. Guðmundur Örn Jónsson, prestur, Vestmannaeyjaprestakalli

32. Sr. Guðný Hallgrímsdóttir, sérþjónustuprestur, prestur fatlaðra, Reykjavík

33. Sr. Guðrún Karlsdóttir, prestur, Grafarvogsprestakalli

34. Dr. Gunnar Kristjánsson, prófastur Kjalarnesprófastdæmi

35. Sr. Gunnar Rúnar Matthíasson, sérþjónustuprestur, Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

36. Gunnar Einar Steingrímsson, djákni í Grafarvogskirkju

37. Gunnbjörg Óladóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Reykjavík

38. Sr. Gylfi Jónsson, héraðsprestur Þingeyjarprófastdæmi

39. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, prestur Garðaprestakalli

40. Sr. Halldór Reynisson, fræðslustjóri, Biskupsstofu

41. Dr. Haukur Ingi Jónasson, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands

42. Sr. Hildur Eir Bolladóttir, prestur, Laugarnesprestakalli

43. Dr. Hjalti Hugason, prófessor, Háskóla Íslands

44. Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur Fríkirkjunnar í Reykjavík

45. Sr. Hólmgrímur E. Bragason, héraðsprestur, Austfjarðaprófastdæmi

46. Hróbjartur Árnason, lektor og guðfræðingur, Háskóla Íslands

47. Sr. Ingileif Malmberg, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

48. Sr. Ingólfur Hartvigsson, sóknarprestur Kirkjubæjarklaustri

49. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir, verkefnastjóri Biskupsstofu

50. Sr. Íris Kristjánsdóttir, sóknarprestur, Hjallaprestakalli

51. Jóhanna Magnúsdóttir guðfræðingur og aðstoðarskólastjóri við Menntaskólann Hraðbraut

52. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir, prófastur, Eiðaprestakalli

53. Sr. Jón Ásgeir Sigurvinsson, guðfræðingur og doktorsnemi, Borgarnesi

54. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sóknarprestur, Langholtsprestakalli

55. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir, sóknarprestur Garðaprestakalli

56. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir, emerita, Akureyri

57. Sr. Jóna Lovísa Jónsdóttir, skólaprestur og framkvæmdastjóri Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar.

58. Karítas Kristjánsdóttir guðfræðingur, Kirkjubæjarklaustri

59. Sr. Karl Valgarður Matthíasson, vímuvarnaprestur, Reykjavík

60. Sr. Kjartan Örn Sigurbjörnsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

61. Sr. Kristinn Jens Sigurþórsson, sóknarprestur, Saurbæjarprestakalli

62. Kristín Sigríður Garðarsdóttir, djákni og áfengisráðgjafi, Kópavogi

63. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir, héraðsprestur Kjalarnesprófastdæmi

64. Sr. Lára G. Oddsdóttir, sóknarprestur, Valþjófsstaðarprestakalli

65. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir, prestur Grafarvogsprestakalli

66. Sr. Magnús Erlingsson, sóknarprestur, Ísafjarðarprestakalli

67. Margrét Ólöf Magnúsdóttir, djákni Árbæjarkirkju

68. Ninna Sif Svavarsdóttir guðfræðingur og doktorsnemi, Hveragerði

69. Nína Leósdóttir, guðfræðingur og kennari, Reykjavík

70. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson, prestur Selfossprestakalli

71. Sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur, Bústaðaprestakalli

72. Sr. Pétur Þorsteinsson, prestur Óháða safnaðarins í Reykjavík

73. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, prestur, Grensásprestakalli

74. Sr. Ragnheiður Jónsdóttir, sóknarprestur Mosfellsprestakalli

75. Rósa Kristjánsdóttir, djákni, Landspítala-Háskólasjúkrahúsi

76. Sr. Sigfinnur Þorleifsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

77. Sr. Sigfús Kristjánsson, prestur, Hjallaprestakalli

78. Dr. Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur, Grafarholtsprestakalli

79. Sr. Sigríður Gunnarsdóttir, sóknarprestur, Sauðárkróksprestakalli

80. Sr. Sigríður Kristín Helgadóttir, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði

81. Sr. Sigríður Munda Jónsdóttir, sóknarprestur Ólafsfjarðarprestakalli

82. Sr. Sigríður Óladóttir, sóknarprestur, Hólmavíkurprestakalli

83. Sigríður Rún Tryggvadóttir, æskulýðsfulltrúi Árbæjarkirkju

84. Sr. Sigrún Óskarsdóttir, prestur, Árbæjarprestakalli

85. Sr. Sigurður Jónsson, sóknarprestur, Ásprestakalli

86. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur Nesprestakalli

87. Sr. Sigurður Grétar Helgason, sóknarprestur, Seltjarnarnesprestakalli

88. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir, sóknarprestur, Djúpavogsprestakalli

89. Sr. Sjöfn Mueller Þór, sóknarprestur, Reykhólaprestakalli

90. Sr. Skúli Sigurður Ólafsson, sóknarprestur, Keflavíkurprestakalli

91. Sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur, Möðruvallaprestakalli

92. Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, dósent, Háskóla Íslands

93. Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir, bóndi, Reykjahverfi, Þing.

94. Svala Sigríður Thomsen, djákni á Grund

95. Sr. Svanhildur Blöndal, sérþjónustuprestur, prestur á Hrafnistu í Reykjavík og á Vífilsstöðum

96. Sr. Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur, Akureyrarprestakalli

97. Sveinbjörg Pálsdóttir guðfræðingur og stjórnsýsluráðgjafi, Hafnarfirði

98. Sr. Tómas Sveinsson, sóknarprestur Háteigsprestakalli

99. Sr. Toshiki Toma, sérþjónustuprestur, prestur innflytjenda

100. Sr. Ursula Árnadóttir, sóknarprestur, Skagastrandarprestakalli

101. Valgerður Hjartardóttir, djákni, hjúkrunar og ráðgjafarþjónustunni Karítas.

102. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, sérþjónustuprestur Landspítala- Háskólasjúkrahúsi

103. Sr. Vigfús Þór Árnason, sóknarprestur, Grafarvogsprestakalli

104. Sr. Yrsa Þórðardóttir, prestur, Digranesprestakalli

105. Sr. Þorgeir Arason, héraðsprestur, Múlaprófastdæmi

106. Sr. Þór Hauksson, sóknarprestur, Árbæjarprestakalli

107. Sr. Þórhallur Heimisson, sóknarprestur, Hafnarfjarðarprestakalli

108. Sr. Þórhildur Ólafs, prestur Nesprestakalli

109. Sr. Þórir Stephensen,emeritus, Reykjavík

110. Ævar Kjartansson, guðfræðingur og dagskrárgerðarmaður, Reykjavík

111. Sr. Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur, Nesprestakalli

(Þetta eru að vísu liðlega en ekki tæplega) ..

Jóhanna Magnúsdóttir, 31.1.2012 kl. 15:14

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

p.s. þetta er tekið af síðu samtakann ´78!

Jóhanna Magnúsdóttir, 31.1.2012 kl. 15:33

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

p.p.s. annars er rangt að vera með áróður á kjörstað ;-)

Jóhanna Magnúsdóttir, 31.1.2012 kl. 17:09

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ég segi sama og þú Jóhanna ég þó ég sé ekki í þjóðkirkjunni hef hlustað á öll viðtölin og Sigríður fannst mér afar trúverðug og góður fulltrúi, ég er líka sammála þér í því að það er eiginlega nauðsynlegt að fá kvenmannsbiskup núna.... eftir Ólapóla... og all vesenið þar í kring.  Ég fylgdist með eins og þetta væri pólitík hehehe

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2012 kl. 17:54

6 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Ef ég gæti kosið, væri Sigríður Guðmarsdóttir minn kandídat....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.2.2012 kl. 02:14

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

ps: ég er ekki heldur í þjóðkirkjunni, ég er skráð utan trúfélaga.   Eftir klúður Karls Sigurbjörnssonar....

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 1.2.2012 kl. 02:15

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Takk fyrir að segja ykkar álit, - það hafa nú bara sex kosið í könnunni - ég læt þetta standa opið, og væri gaman af fleiri taka þátt- nú kannski dúkka upp fleiri framboð! ;-) ..

Tekið skal fram að ég get ekki séð hverjir kjósa, svo þetta er algjörlega nafnlaust, nema þið segið álit ykkar hér í athugasemdum! ..  

Jóhanna Magnúsdóttir, 1.2.2012 kl. 07:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband