25.5.2010 | 18:54
Júróvisjónmjónusalat á fyrsta degi "Síberíukúrs" ..
Þessa stundina er ég að ofnbaka kjúklingabringur, setti örlitla kókosfeiti frá Sollu út á til að gera smá djúsí. Kryddaði með "lemon-and pepper dill" kryddi, það er svona kvörn sem fæst í Bónus og smá Herbamare salti (öll heimili verða að eiga það) Grilla þær aðeins í restina.
Set í skál, ferskt spínat og salat svona bara úr poka, gjarnan smá rucola líka, eða hvaða salat sem til er í ískápnum. Sker niður tómata, gúrku, papriku, avocado, vínber .. gaman að raða því fallega, t.d. tómötunum að hluta til á barmana á skálinni og paprikuna, en mín skál er víð eins og sést á meðfylgandi mynd!
Kannski eitthvað fleira sem ég finn, já nammi, namm,tamari ristuð graskersfræ, en eins og allar seiðkonur vita þá virka graskersfræ vel á kynhvötina, bara svona ef einhvern langaði að vita! Svo er bara eftir að skera bringurnar sem eru tilbúnar í þunna strimla og bæta þeim í salatið .
Af því þetta er "Síberíukúrssalat" erum við ekkert að gúffa á þetta dressingu, nema helst úr ávöxtum eða einhverju meinhollu, en stelst til að setja 2 -3 tsk ólífuolíu og um leið sker ég niður 2-3 sultaða hvítlauksgeira og strái yfir.. Kryddað með salti og pipar (bara úr kvörn auðvitað) ekkert matarsaltsbull.
Auðvitað má sá eða sú sem ekki er á Síberíukúr setja sína dressingu út á eftir á, eða t.d. fá sér feta ost með eða parmesan.
Voila - komið! Fyrir mér skiptir útlitið á matnum máli, því það er skemmtilegra að borða fallegan mat en ljótan. Vona að ég verði ekki ásökuð um fordóma af neinum toga!
Reyndar grillaði ég "Buffalo" leggi fyrir börnin í partýinu, svo þau fengju ekki of mikla hollustu, svo er kristallinn kominn á sinn stað.
Athugasemdir
Sólskinssósa frá Móður Náttúru var höfð út á, Hulda systir bjargaði því og mæli með henni, létt og leikandi - Til hamingju Ísland!
Jóhanna Magnúsdóttir, 25.5.2010 kl. 21:15
Hrikalega girnilegt !
www.zordis.com, 25.5.2010 kl. 22:50
Nammi namm hvað þetta hljómar vel
Hrönn Sigurðardóttir, 26.5.2010 kl. 16:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.