Elisabeth Mai 1 árs, 7. maí 2010

Nú er hún orðin eins árs, lítil en dugleg dama, algjör rófa og ömmu skott. En aftur og nýbúin er amma fjarverandi ömmubörnum og situr með tárvot augu heima og óskar sér þess heitast að vera komin til að fylgjast með afmælisbarninu. HeartWizard  Fyrsti afmælisdagurinn er stór dagur.  

Merkilegt hvað börnin vaxa fyrsta árið, frá því að vera svo miklir ungar í það að verða ákveðnir einstaklingar með skap, að minnsta kosti þessi stelpa! 

Amma sendir góðar kveðjur til Hornslet, veit að mamma, pabbi og Máni eiga eftir að halda flott upp á afmælið hennar Mai litlu. 

 

 

 amma_me_mai.jpg

 

 

 

 HeartHeart

elisabeth_mai_skaeruli_i.jpg


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Dótturdóttir mín átti afmæli í fyrradag, hún er svo heppin að vera fædd 050505.  Sem betur fer hitti ég mín barnabörn nokkuð reglulega eða allavega vikulega, nema hann Daníel Esekíel sem býr á Sauðárkróki ásamt mömmu sinni og fósturpabba.  Hann hitti ég bara 3-4 sinnum á ári og sakna ég hans oft mikið en við tölum saman í síma, af og til. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.5.2010 kl. 01:03

2 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Úps til hamingju með þessa fallegu stúlku, ég gleymdi að óska þér til hamingju með afmælið hennar. 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 7.5.2010 kl. 01:05

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Innilega til hamingju með stelpuskott.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.5.2010 kl. 07:23

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Takk fyrir kveðjurnar, ég vonast til að sjá dömuna á skype um helgina.

Jóhanna Magnúsdóttir, 7.5.2010 kl. 07:35

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með litlu skottuna

Ásdís Sigurðardóttir, 10.5.2010 kl. 11:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband