Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda

Um daginn og veginn ..

Jæja, ætla ég að færa eina afslappaða færslu um daginn og veginn en ekki að ræða nein "heit" mál. Það er frekar orkukrefjandi líka.

Nú er auðvitað aðventan og bara kósý heima hjá okkur Völu minni, en ég er heppin að eiga svona myndarlega stelpu sem er búin að baka sörur og toppa og rista hnetur og ég veit ekki hvað. Þrátt fyrir hvernig ég er hefur mér verið boðið að tala í tveimur kirkjum á aðventunni. Það er ekkert smá notó að taka frá stund fyrir söng og að rabba um vináttu Guðs og vináttuna við okkur sjálf, hún er ekki síður merkileg og nauðsynleg.

Í morgun var skorinn burt blettur, vonandi ekki eins slæmur og sá sem tekinn var í fyrra sem reyndist vera sortuæxli, en það færist óneitanlega í mann pinku beygur. Skil ekkert í því að enn er verið að auglýsa "skólatilboð í ljós" þegar þykir orðið sannað að ljósalampar eru ekki minna krabbameinsvaldandi en reykingar. Mætti þá ekki alveg eins auglýsa "skólatilboð á sígarettum??"  Ég er reyndar búin að senda bréf á Heilbrigðisráðuneytið og benda á þetta (ein alltaf að skipta sér af)  En ég er fylgjandi því að fólk taki meiri ábyrgð á eigin heilsu, líka þá í mataræði. Ekki veitir af á tímum niðurskurðar í Heilbrigðiskerfinu.

Jæja, þetta var minn dagur og vegur í dag...

 


Fjölskyldan í blómapottinum: Jörð

Eins og fram hefur komið, var eitt af þremur málefnum Þjóðfundarins að ræða stoðir samfélagsins. Fjölskyldan var ein af þessum mikilvægu stoðum. Fjölskyldumynstur hafa tekið breytingum í aldanna rás.

Fyrir mér er fjölskyldan einstaklega mikilvægt fyrirbæri. Ég er hluti af sterkum og samheldnum systkinahópi, en við urðum það eflaust vegna aðstæðna okkar sem börn. Ég finn afskaplega til með fjölskyldum sem eru klofnar, þá á þann hátt að t.d. systkini talast ekki við vegna ósættanlegs ágreinings.

Það er forvitnilegt að láta börn teikna fjölskyldumynd og sjá hvað kemur út. Ég man eftir strák sem teiknaði heimilisköttinn sem einn af fjölskyldumeðlimu, annar fór að setja út á það, en ég stöðvaði það og sagði að við mættum í þetta sinn alveg hreint ráða hverjir tilheyrðu fjölskyldunni. Kattareigandinn varð glaður með það, því ekki vildi hann fyrir nokkurn mun útiloka kisu úr sinni fjölskyldu!  Fjölskylda er s.s. ekki bara mamma, pabbi og börn. Fjölskyldan getur verið tengd í allar áttir, kross og ská og út og suður.  Auðvitað hlýtur að vera til einhver opinber skilgreining á fjölskyldunni, en hér er ekkert spekúlerað í svoleiðis.

Í gær kvaddi fyrrverandi tengdafaðir minn þessa jarðvist,  aðeins 71 árs gamall. Mér líður svolítið á ská þar, þó ég hafi verið mjög mikið tengd honum, enda tengdadóttir í 22 ár.  Þegar hann varð 60 ára skrifuðum við öll börn og tengdabörn í afmælisminningarbók og ég skrifaði "Þegar ég var 7 ára missti ég föður, en þegar ég var 18 eignaðist ég pabba" ..  Ég man hvað andlitið á honum lýstist upp þegar hann las þetta og ég fékk eitt af hans góðu sterku faðmlögum. 

Fyrir u.þ.b. viku síðan heimsótti ég "afa" eins og ég kallaði hann í eyru barnanna minna. Settist inn hjá honum þar sem hann lá og hann tók að fyrra bragði  þétt í hönd mína og við héldumst lengi, lengi. Mér var það ómetanlegt og þótt hann væri farinn að láta á sjá vegna veikinda sinna hafði mér aldrei þótt hann fallegri.  Ég ákvað að "troða mér" ekki meira að eftir þessa fallegu stund sem við áttum saman og tímdi heldur ekki að skemma þessa fallegu minningu sem varð okkar kveðjustund.

Þó að við skiljum við maka, þá skiljum við ekkert endilega við fjölskyldu fyrrverandi, sérstaklega ef að böndin eru sterk og margofin. Þó verðum við að varast að troða ekki nýjum fjölskyldumeðlimum um tær og vera fyrir Wink

Ég er, eins og ég skrifaði í fyrra bloggi, umvafin fjölskyldunni minni núna. Eva dóttir mín er búin að vera hér í vikudvöl ásamt dásamlegri sex mánaða dótturdóttur, og í dag komu svo Henrik maðurinn hennar og stóri yndislegi dóttursonurinn hann Máni sem er fimm ára myndarpiltur. Hann sefur einmitt hér við hlið mér núna, en ég söng fyrir hann "Fram í heiðanna ró" og strauk andlitið með fingurgómunum, sem honum þykir svo gott.  Hann sofnaði vísu á methraða þar sem hann var búinn að vera á ferðalagi frá kl. 5:00  í morgun.

Ég hlusta á malið í krökkunum mínum og tengdasyni frammi og svo er líka Birta bróðurdóttir mín og frænka barnanna minna í báðar ættir, í heimsókn ásamt Rasmus manninum sínum.

Orðið sem kemur mér í huga núna er þakklæti; Þakklæti fyrir að fá að vera hluti af fjölskyldu, minni nánustu fjölskyldu sem og stórfjölskyldu og svo í raun af heimsfjölskyldunni.

Öll erum við sem blóm í þessum sameiginlega blómapotti; Jörð.

og svo lag fyrir afa Kela og okkur hin sem sitja eftir:

 


Í faðmi fjölskyldu og vina = umvafin englum

Í gær áttu nokkrar frægar konur afmæli, helst má nefna þær Goldie Hawn og Björk, en svo átti ein ófræg kona, sem hér bloggar, afmæli. Nú eru aðeins tvö ár í "The Big 50" .. Wizard

Það er afskaplega margt búið að gerast á sl. ári, margt sem hefur hvatt mig til að endurskoða minn þankagang. Festast ekki í smáatriðum og upplifa hið góða, og hið góða hefur bara komið eins og á færibandi og ég hef vart undan að taka við!

"Hið góða" sem ég er að tala um hér er aðllega í formi fólks. Fólk hefur alltaf verið mitt "áhugamál" ef svo má kalla. Ég er ótrúlega mikil félagsvera og í rauninni dáist ég að fólki. Margbreytileika þess og hæfileikum.

Í gær var aldeilis ekki undantekning og sannaði að manneskjurnar í mínu lífi eru mér verðmætastar af öllu.   

Til að byrja með var það fröken Elisabeth Mai, 6 mánaða dótturdóttir sem vakti mig með hjali sínu, en hún sefur uppí þessa dagana. Ég þurfti auðvitað að þykjast sofa á meðan Eva, mamma hennar læddist fram og svo komu þær báðar syngjandi Eva og Vala "Hún á afmæli í dag" með kertaljós, hafraklatta, banana og pakka. Þetta með hafraklattann og bananann var nú eiginlega svolítill brandari, þar sem mín þykist alltaf vera í aðhaldi.

Í pakkanum voru tveir fallegir bolir og ein mynd. Við fórum á fætur, og fljótlega hringdi Tryggvi jr.(6 ára)  í mig og óskaði mér til hamingju með afmælið og ræddi lífið og tilveruna.  Tobbi sonur minn fylgdi fljótt á eftir, hafði rifið sig upp til að hringja í mömmu sína.

Ég kíkti þá inn í tölvuna og sá þá margar góðar afmæliskveðjur frá fólki á Facebook. Það er ótrúlega gaman að eiga afmæli þar, því þá rifjar maður m.a. upp mörg góð andlit sem ekki sjást svona dags daglega. Svo eru auðvitað kveðjur frá fjölskyldunni sem er líka á Facebook bæði nær og fjarstöddum. Helle (frá Danmörku) barnapían mín frá því í gamla daga rifjaði upp að hún hefði verið hér á fertugsafmælinu mínu og þá áttaði ég mig á því hvað tíminn í raun flýgur.

Ég fékk heimsókn frá Önnu fv. mágkonu minni og þáði hún kaffibolla, en hún kom með fallegan pakka með enn yndislegra innihaldi, en það var ullarkragi sem hún hafði prjónað sjálf. Við fengum okkur kaffi og spjölluðum. Vala fór á meðan  í vinnuna sína, en hún var að byrja að vinna aftur hjá Sævari Karli.  Anna stoppaði stutt. Eva dreif sig í Kringluna með litlu Mai, en ég gerði mig klára að fara í "Brunch" til hennar Leshrings-Mörtu. 

Rétt áður en ég fór út hringdi Henrik "svigeson" og Máni litli ömmustrákur (5 ára) og óskuðu "ömmu gömlu" til hamingju með daginn. Amma gamla var ánægð að heyra í honum, en saknar litla pjakksins. Þeir eru að njóta þess að vera tveir einir í Danmörku og voru á leiðnni í einhverja svaka flotta sundlaug í Silkeborg. En þeir verða örugglega glaðir að fá mömmu og Mai heim á mánudag.

Til Mörtu í Selásinn var ég mætt upp úr kl. 12:00 og þar hófum við, fimm konur,  samveruna með labbrabbi, eins og ég kalla það og gengum góðan Rauðavatnshring. Á göngunni hringdu Hulda Rósars og Bjössi bróðir til að óska mér til hamingju með daginn og ég fékk sms frá Binna bróður í Danmörku.

Þetta var meiri háttar skemmtileg og gefandi samkoma með flottum og klárum konum sem mig langar að hitta oftar.  Marta bauð upp á ljúffenga fiskisúpu og svo franska súkkulaðiköku með rjóma á eftir, svo ekki væsti um okkur eftir göngutúrinn.  Hún sendi mig síðan heim með fallega rauða gladiolu í tilefni dagsins.

Á heimleiðinni kom ég við í Passion, sem er bakarí í Álfheimum og keypti marengstertur og brauð. Síðan í Bónus og verslaði grænmeti og gos.

Eva Lind og Elisabeth Mai

Þegar ég kom heim um kl. 16:00 var Eva þar fyrir og Mai, bretti ég upp ermar og eldaði kjúklingapottrétt en Eva gerði salat.  Svindlaði aðeins á eftirréttum, eða guðdómlegum marengstertum eins og áður hefur komið fram.  Systur mínar Hulda og Lotta, Dúi mágur, börnin hennar Lottu, Birta og Rasmus, mamma og svo auðvitað börnin mín og dótturdóttir mættu svo öll milli 17:00 og 20:00 í afmælisveisluna. Ég var næstum búin að gleyma hundinum Teklu sem var heiðursgestur. Yndisleg Cavalier King Charles Spaniel tík, svona eins og hundar gerast prúðastir! ;-)

Þetta er orðin löng persónuleg færsla, vona að Mogginn fyrirgefi mér að vera persónuleg, svona á sunnudegi, og allir þeir sem eru hneykslaðir á því að fólk sé að skrifa eitthvað opinberlega sem að öðrum kemur ekki við. Það kemur að vísu mörgum þetta við, því að ég veit að margir átta sig á því að þarna er ég ekki aðeins að segja frá mínum degi, heldur mikilvægi vina og fjölskyldu. Ein af stóru stoðunum í niðurstöðu þjóðfundar var einmitt fjölskyldan, og líklegast hefur stórfjölskyldan á fáum stöðum eins mikið vægi eins og á Íslandi.

Tobbi og Ásta fóru fyrr úr afmælinu, þar sem þau fóru til að vera hjá afa barnanna minna sem er á líknardeild, og síðan fór Vala og leysti þau af. Elskulegur fyrrverandi tengdapabbi er á síðustu metrum í þessu lífi og það litar okkar líf og framkallar mörg sorgartárin, en þéttir um leið fjölskylduböndin og við metum hvern dag sem við fáum.

Því Þakka ég fyrir yndislegan afmælisdag. Fyrir tæpu ári síðan var ég ekkert viss um að þessi dagur yrði að raunveruleika. Þá greindist ég með sortuæxli, sem er illkynja húðkrabbamein og ég hélt satt að segja að ég væri þá bara úr leik en slapp fyrir horn og er núna bara með ör. Heppin ég.

 

Amma Jóga, Tekla, Mai, Ásta og Tobbi

Vala, Mai og (Lang)amma Vala

Rósa, Dúi, Ísold, Hulda, Mai og Lotta


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband