Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd, hann skapaði þau karl og konu.

Ég var einu sinni með fermingarnámskeið og las eftirfarandi texta fyrir börnin: „Og Guð skapaði manninn eftir sinni mynd, hann skapaði hann eftir Guðs mynd, hann skapaði þau karl og konu“ (1 Mós 1:26–27).“ Ég bað börnin um að teikna þá mynd sem þeim birtist af Guði eftir þennan lestur. Myndirnar voru fjölbreytilegar – allt frá þeirri sem við köllum hefðundnasta; Eldri mann með hvítt skegg yfir í það að vera ljósgeisli. Ein stúlka teiknað Guð sem var bæði karl og kona. Eftir þetta spunnust rökræður í hópnum og einn drengur varð reiður og barði í borðið og sagði: „Guð er karlmaður og hana nú“

..Hinn sögulegi Jesús var svo sannarlega maður (eftir okkar bestu vitund). Orðið varð hold. Orðið varð maðurinn Jesús. En Jesús er líka Guð – og guðsmyndin okkar er örugglega fjölbreytt, eins og þessara barna á námskeiðinu.

 

Mér finnst viðbrögðin þar sem fólk hneykslast og segir sig úr þjóðkirkjunni vera á svipuðum nótum og drengsins sem varð reiður – og kannski sár.Það var verið að „brengla“ hans guðsmynd sem var þessi gamli góði afi – með síða skeggið. En mér finnst við ekki getað ætlast til að allir hafa okkar guðsmynd. Ef öðrum finnst Guð vera „kærleikur“ og teiknar hjarta þá er það hans/hennar guðsmynd.Jesús sagði sjálfur að við mættum honum í hans minnsta bróður. Þegar við gefum hungruðum að borða gefum við honum að borða. Þá myndum við teikna mynd af hungruðum betlara – myndi fólk hneykslast á því?

 

-Mannréttindi og frelsi til að vera þau sem við erum – og elska þau sem við elskum eru að aukast. Ekki fyrir svo mörgum árum hneykslaðist fólk og sagði sig kannski úr þjóðkirkjunni vegna þess að réttur samkynhneigðra til hjónavígslu var viðurkenndur.Fólk þarf kannski bara tíma til að aðlagast og átta sig ?Ég ætla ekki að hneykslast á þeim sem hneykslast … því þá endum við öll hneyksluð.

 

„Nobody knows the trouble I´ve seen, nobody knows but Jesus“ … eru þetta ekki skilaboð að allt fólk getur speglað sig í Jesú Kristi og hann skilur. Það eru til milljón „hefðbundnar“ myndir af Jesú – og það ætti ekki að trufla meðalmann eða -konu þó að ein birtingarmyndin sé einhvers konar trans einstaklingur. Mér finnst það bara vera að víkka veggi kirkjunnar – skilaboð um að allt fólk sé velkomið (og ekki vanþörf á). „Hér er enginn Gyðingur né grískur, þræll né frjáls maður, karl né kona. Þér eruð allir eitt í Kristi Jesú.“Galatabréfið


mbl.is Ætla að segja sig úr kirkjunni vegna auglýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er til nóg af peningum í heiminum, en ekki nægur kærleikur ..

Það kom berlega í ljós þegar að Notre Dame kirkjan brann að það er til nóg af peningum þegar á reynir.   Forgangsröðunin er bara ekki gagnvart sveltandi fólki eða fátæku.  Þeir sem sitja á peningahrúgunum safna meira undir sig og velja svo hvað þeir gera.  

Við getum auðvitað öll litið í eigin barm.  Margir eiga meira en nóg,  en vilja frekar lifa í örygginu og eiga varasjóði - eða möguleika á að kaupa sér dýra hluti og fara í ferðalög, en að deila með þeim sem minna eiga.  Þannig virðist mannlegt eðli virka.  

Á móti er það nú þannig að mikið af vellauðugu fólki gefur mikið til mannúðarmála,  svo við erum ekki alslæm.  Margur "meðaljóninn"  er líka styrkaraðili að ýmsu eins og Unicef eða gefur reglulega til góðs málstaðar í sínu heimalandi.  

Alltaf er sama niðurstaðan:  Við sjálf getum verið breytingin sem við viljum sjá í heiminum.  Ef við eigum nóg, eða jafnvel umfram nóg þá ættum við að byrja á því að deila með þeim sem ekki á nóg.  Því fleiri sem gera það,  þess meiri jöfnuður verður í heiminum.  Það er skylda, eða ætti að vera skylda,  ríkisstjórna og leiðtoga að stuðla að sanngjarnri dreifingu auðs og stjórnmálamenn að vera fyrirmyndir.  


mbl.is Áhrif peninga ein helsta ógn samfélagsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mætti taka alla flugelda úr umferð fyrir mér ..

Ég vona að það sé bara tímaspursmál þangað til við förum að hætta þessari sprengjuhríð.  Þessu flugeldaregni sem einu sinni stóð nú bara yfir á gamlárskvöld,  en er nú farið að rigna öll jólin og langt yfir áramót svo aumingjans dýrin titra og skjálfa og vita ekkert hvað er að gerast! - 

Stjörnuljós og mild blys - væru nóg og kannski ein og ein flugeldasýning sem væri stýrt af hjálparsveitum. -    

Mér finnst ókostirnir  - mengun; loft-og hávaðamengun - og svo hversu þetta hræðir mörg dýr vera alveg nægileg rök fyrir að hætta þessu.   

Ég forða mér yfirleitt út á land um áramót, til að þurfa ekki að vera í mengun og hávaða, en er heppin að búa þar núna :-)  ..  Auðvitað verður eitthvað skotið upp í kringum mig, - en vonandi sem minnst. 


mbl.is Kúlublys tekið úr umferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég vil þakka þessu fólki fyrir að vera fulltrúar þjóðarinnar ..

Það er ansi hátt hlutfall þjóðarinnar sem stendur með Báru.  Ekki komst nema brot a þjóðinni til að standa með Báru í dag,  - svona í holdi,  en hinir sem komu ekki eða komust ekki voru með í anda og þakka þeim sem mættu og sýndu stuðning. - 
Það væri ógnvænlegt að standa ein gegn þessu veldi sem þeir virðast stýra, fjórmenningarnir. 

Áfram Bára og við öll.   

 


mbl.is „Þjóðin er að springa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nóg af landi, nóg af mat, nóg af peningum .... en ekki nógu mikill kærleikur

Svona förum við með börn þessa heims,  og það er þyngra en tárum taki.  Ég var að skoða greinar um matarsóun, bara í fyrradag, þar sem verslanir voru að farga heilu kössunum af grænmeti.  Einhvern veginn er þetta allt svona vegna þess að við höfum skapað heimskerfi þar sem gæðunum er misskipt.  Hvað er þetta annað en eigingjarn heimur,  þegar að við viljum hafa allt út af fyrir okkur? ..    Hinir mega ekki njóta þess sem við höfum? -    Já, ég segi "við"  því við erum öll íbúar á jörðinni og ættum að skipta því sem hún gefur okkur réttlátlega með okkur. 

Því miður er ég líka forrituð á þennan máta,  eins og flest annað fólk, en viðurkenni vitleysuna og ég trúi því einlæglega að ef við mannfólkið værum kærleiksríkari þá deildum við öllum heimsins gæðum á réttlátari hátt. 

Það er hægt að byrja með viljayfirlýsingu.  Í stjórnarskrá Bandaríkjanna stendur að allir menn séu skapaðir jafnir,  en það getur engan veginn gengið upp þegar að þeir meina sumum að vera jafnir.   Þá verður þetta í besta falli "Animal Farm" Orwells,  þar sem "Sumir eru skapaðir meira jafnir en aðrir" ..   

Blessað barnið að lifa svona æfi og aumingjans faðir hennar sem var að leita að betra lífa fyrir sig og stúlkuna sína.  

 

48378054_2205796769490503_8796359013827608576_n


mbl.is Sjö ára stúlka lést í haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kona fer í stríð ..

Það þarf hugrekki til að stíga fram, vitandi að það verða afleiðingar.  En um leið tel ég að Bára viti nú þegar að það eru margir sem standa með henni og styðja þessa afhjúpun.  

Auðvitað þarf að virða lög landsins og þá líka persónuverndarlög, en ég vil minna á að stundum brýtur nauðsyn lög, - eins og frelsarinn  benti ítrekað á í hinni helgu bók. 
 

Svo er annað sem stendur í Biblíunni og það er þetta með að sannleikurinn geri okkur frjáls, og ég held að það sé annar punktur sem styðji þessa uppljóstrun.   

Bára minnir mig svolítið á kvenhetjuna sem barðist við kerfið í kvikmyndinni Kona fer í stríð,-  og hver hélt ekki með henni?   

Ég held með Báru. 

 


mbl.is Bára fer fyrir héraðsdóm á mánudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Virðingin kemur ekki utan frá ...

Fólk sem kemur fallega fram við hvert annað og starfar af  heilindum fyrir þjóðina skapar virðingu fyrir Alþingi,  hvort sem það er klætt í gallabuxur eða glansföt.  

Hér er það innihaldið sem virkilega skiptir máli.  


mbl.is Gallabuxur fyrir neðan virðingu Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flateyjargátan - meiri skömm að vera einstæð móðir en að búa með ofbeldismanni ..

Það var gaman að fylgjast með Flateyjargátunni á RUV og ég missti ekki af einum þætti.  Það var ekki síst tíðarandinn í þáttunum sem vakti áhuga minn,  klæðnaður fólksins og einnig hugarfar varðandi náungann. -   Þetta var gamli tíminn, og gamla hugarfarið, - og þá hugmyndirnar um hvað væri skömm og hvað væri ekki skömm. 

Í lokaþættinum kemur fram að aðalsöguhetjan hafði reynt að flýja sambýlismann sinn sem beitti hana miklu ofbeldi, andlegu sem líkamlegu, og setjast að hjá föður sínum.   Hann, "smitaður" af hugmyndafræði samtímans sendi dóttur sína til baka í fang ofbeldismannsins,  vegna þess að skömmin var svo sterk.   Kannski var það "kærleikur" þess tíma, eða faðirinn taldi sér trú um að hann væri að hlífa dóttur sinni við dómi samfélagsins, - og um leið var hann að hlífa sjálfum sér við þá dóma að vera faðir einstæðrar móður með "lausaleikskróga" .. ein og samfélagið kallaði stundum þau börn sem fæddust utan hjónabands.   
Það voru þessir óvægnu dómar hins harða umheims sem rak ungar konur í fang þeirra sem þær voru að flýja.  Auðvitað var þetta ekki kærleikur,  heldur ótti sem er andstæða elskunnar.

Sem betur fer eru tímarnir breyttir,  en þó ekki alveg.  Enn er til fólk sem hangir saman á almenningsálitinu.   Það veit ég vegna þess ég hef spurt:  "Hvers vegna skilur þú ekki við hann/hana ef þér líður svona illa í sambandinu? -  og svarið var "Hvað segir fólk?" .. 
Þá erum við ekki að tala um ungar konur eða unga menn, -  heldur jafnvel rígfullorðið fólk.  Fólk sem er í sumum tilfellum fast í alkóhólísku sambandi.  Það eru alls konar dæmi. 

Það er vont að vera fangi hugarfarsins, -  því að þetta fólk, sem er orðið eldra (og líka hið yngra)  þarf kannski ekki endilega að hlusta á einhvern annan segja "Það er skömm að vera einstæð" - eða  "Það er skömm að skilja"  .. eða hvað sem það er sem "syngur" í höfðinu á þeim,    Það eru auðvitað eigin fordómar og hugarfar sem er erfiðast að eiga við. 

Þessi hugsun  "Hvað finnst mér um mig?" ..   

Það er hugrekki að stíga út úr hugarfarinu sem hefur kannski verið innrætt frá bernsku - og standa upp fyrir sjálfum sér og rugla ekki saman óttanum og elskunni.   


Hlustum á sérfræðinga í fötlunarfræðum

Þegar ég fór að vinna á Sólheimum í Grímsnesi á sínum tíma, notaði ég alls konar röng orð vegna þess að ég vissi ekki betur.  Ég nefndi fólkið þar til dæmis "vistmenn" og gerði mér ekki grein fyrir að það væri rangt.  En um leið og mér var bent á það, sá ég villuna.  Fólkið þar voru bara íbúar Sólheima, en engir "vistmenn"  en það var að sjálfsögðu ekki af neinu nema fáfræði sem ég vissi það ekki. - 

Sérfræðingar í fötlunarfræðum vita sínu viti.  Ef þeir vilja ekki vinna með Önnu Kolbrúnu þá ber að hlusta á þá, og kannski sýna örlitla auðmýkt? -  Hvers vegna velur Anna Kolbrún ekki að víkja þar til niðurstaða siðanefndar kemur í ljós í stað þess að sitja sem fastast?  

Stolt?  Það er engin skömm að því að sýna auðmýkt, - og eiginlega alveg hið gagnstæða.  

Ég mæli með því að hlusta á sérfæðinga í fötlunarfræðum.  

Reyndar er eitt orð sem skiptir mestu máli þegar kemur að öllum mannlegum samskiptum, hvort sem það eru samskipti við fólk með fötlun eða ekki fötlun:  Það er orðið VIRÐING.  

Af virðingu við hin fötluðu myndi ég, í sporum Önnu Kolbrúnar,  víkja en ekki sitja. 

Ég er viss um að niðurstaða sérfræðingana er byggð á virðingu við fólk með fötlun. 



mbl.is Hyggst sitja áfram í velferðarnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjar eru afleiðingarnar?

Hvaða afleiðingar hefur það í för með sér að vera dæmd sek um persónuverndarbrot? - 

Er það bara svona skammarbréf  "Skamm Bára þú mátt aldrei gera þetta aftur!"? .. 



mbl.is Persónuvernd með Klausturmál í skoðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband