3.6.2012 | 10:47
Stjörnuspá dagsins 3. júní 2012
Sporðdreki
Þú hefur öðlast djúpan skilning á því sem skiptir sköpum fyrir þig. Ekki hræðast að þú vitir ekki hvað skuli gera næst, svarið er handan við hornið.
---
Kíki ekki oft á stjörnuspá, - og hef ekki trú á að allir sporðrekar heimsins séu að upplifa það sama, - en í morgun var eitthvað sem "hvíslaði" að mér að lesa, og þessi texti hitti beint í mark.
Það er gott að vera á þeim stað að hræðast ekki. Djúpi skilningurinn hefur svo sannarlega verið að koma, það er þessi ánægjulega tilfinning að vera í móðurlífi heimsins, umvafin legvatni heimsins og fá næringu frá heiminum.
Upplifa uppsprettuna. -
Það er nú bara svoleiðis, - og meira ætla ég ekki að skrifa á þessum fallega júnímorgni.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.