11 kjósa JÁ, 65 kjósa NEI ... hef þetta opið út vikuna ...

Er með skoðanakönnun í gangi hér vinstra megin á síðunni.  Mikill meirihluti hefur hakað við að samþykkja ekki IceSave III samninginn.  Ég ætla að halda þessu opnu áfram, fá helst um 1000 manns til að taka þátt.

Vil minna á það að virða hvert annað sem manneskjur þó við séum með andstæðar skoðanir og set hér inn það sem ég sá hangandi upp á kennarastofu í Hagaskóla um Bergmál lífsins,  en það er svona eitthvað í þá áttina að brosa til heimsins og heimurinn brosir til þín. Smile

 

Feðgar voru í göngu upp í fjöllum.
Allt  í einu, dettur sonurinn og meiðir sig og öskrar: "AAAhhhhhhhhhhh!!!"
Hann verður voða hissa þegar hann heyrir rödd einhvers staðar í fjöllunum svara sér: "AAAhhhhhhhhhhh!!!"

Af forvitni öskrar hann til baka: "Hver ertu?"
Honum er svarað: "Hver ertu?" Hann öskrar: "Hver ertu?" Honum er svarað: "Hver ertu?"
Sonurinn er orðinn pirraður og svarar:  "Heigull!"
Honum er þá svarað: "Heigull!"

Sonurinn horfir á föður sinn og spyr: "Hvað er að gerast ?"
Faðirinn brosir og segir og taktu nú vel eftir:

Faðirinn öskrar upp til fjallana:  "Ég dáist að þér!"
Hann fær svar: "Ég dáist að þér!"

Aftur öskrar faðirinn: "Þú ert meistari!"
Honum er svarað um hæl: "Þú ert meistari!"

Sonurinn er hissa, en skilur ekki hvað er um að vera.
Faðirinn útskýrir: Fólk kallar þetta bergmál, en í raun er þetta lífið sjálft.

Lífið gefur til baka allt sem þú segir og gerir.
Lífið endurspeglar gjörðir okkar.
Ef þú vilt meiri kærleik í heiminn í dag, byggðu upp meiri kærleik í hjarta þínu.
Ef þú vilt bæta lið þitt, bættu þig.  

Þessi tenging á við um alla hluti lífsins.

 

fjoll_a_nottu.jpg
 
 
p.s. Þú ert frábær .... Halo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Tölurnar hafa breyst og hlutfallið líka nú eru 28 með JÁ og 66 með NEI,  ca 30% á móti 70%  .. spennandi að fylgjast með þróuninni.

Jóhanna Magnúsdóttir, 5.4.2011 kl. 07:49

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

 .. 100 hafa svarað - og prósentan er akkúrat 30/70. .. Takk fyrir að taka þátt!

Jóhanna Magnúsdóttir, 5.4.2011 kl. 08:03

3 Smámynd: Jón Sveinsson

MYKIРER ÉG ÞÉR SAMMÁLA.

Jón Sveinsson, 5.4.2011 kl. 08:49

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Frábært að sjá þetta.  Og sagan er alveg meirihátta, hef heyrt hana áður, en svona sögur þarf maður að heyra oft og mörgum sinnum til að muna um hvað lífið snýst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 5.4.2011 kl. 09:18

5 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

já þetta er gott.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 5.4.2011 kl. 10:30

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Ég er búinn að hafa skoðanakönnun hjá mér í nokkurn tíma og svona er staðan:

 

Spurt er

Ætlar þú að samþykkja Icesave III
25,8%
Nei 68,5%
Óákveðin 5,6%
178 hafa svarað

Gunnar Th. Gunnarsson, 5.4.2011 kl. 12:03

7 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Þú ert frábær

Jónína Dúadóttir, 5.4.2011 kl. 13:23

8 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ógurleg mistök, ætlaði að segja JÁ en ýtti óvart á NEI. Vona að ég geri ekki eins á laugardaginn.

Emil Hannes Valgeirsson, 5.4.2011 kl. 15:20

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Jóhanna. Ég spyr oft sjálfan mig. Eru stjórnvöld aldrei samstíga fólkinu í landinu. Skynja þau aldrei huga þess s.s. í Icesafe eða ESB. Þau virðast vera virkilega á móti þegnum landsins. Ég var/er með könnun varðandi ESB og þar líka eru ca. 70% á móti og 30% með. Hreinsum Icesafe út og næst ESB.i

Valdimar Samúelsson, 5.4.2011 kl. 15:21

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Við sjáum hvert stefnir .. það er mikil slagsíða á "Nei-ið" svo ég hef sterka trú á að það verði ofan á í eiginlegri atkvæðagreiðslu.

Æ, vont að þú ýttir á rangt Emil frændi!.. svona getur manni orðið fótaskortur á fingrinum! 

Skoðanakannanirnar eru á svipuðu róli hjá okkur Gunnar - spurning hvort þær væru öðru vísi á öðrum miðli? 

Sagan er góð - Ásthildur, og þið öll sem hafið kommentað um hana,  ég féll alveg fyrir henni þegar ég sá hana. 

Valdimar, ætli við verðum ekki bara að fara að stunda svona þjóðaratkvæði til að fá fram vilja þjóðarinnar? 

Jóhanna Magnúsdóttir, 5.4.2011 kl. 22:12

11 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

  Góðir hlutir virðast gerast, þrátt fyrir allt

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 6.4.2011 kl. 01:16

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Þetta er allt að koma.

Jóhanna Magnúsdóttir, 6.4.2011 kl. 06:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband