25.5.2010 | 22:50
Hanna Birna að snúa á Jón Gnarr?
Nú er það sem gildir í borgarstjórnarkosningunum að vera nógu frumlegur og fyndinn. Talsmenn fjórflokkanna svokölluðu hafa hingað til ekki fattað að það að kasta tómötum í Jón Gnarr og hans Besta flokk er ekki vænlegt til árangurs. Þeir þurfa að sjálfsögðu að koma með skemmtiatriði á móti sem trompar Besta flokkinn.
Hanna Birna kom skemmtilega á óvart í kvöld, þegar hún steig á svið sem fulltrúi Albaníu í "The Eurovision Song Contest 2010" .. Geri aðrir betur!! ..
Þarna er möguleiki á að fá góða kosningu!
Hægt er að sjá Hönnu Birnu við æfingar á Youtube, og ef vel er að gætt Dag B. Eggertsson leika á fiðlu!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Spil og leikir | Facebook
Athugasemdir
og ég sem héllt að þetta væri Puss in boots
Svanur Gísli Þorkelsson, 25.5.2010 kl. 23:20
he þær syngja a.m.k. álíka vel
Sigurður Þórðarson, 26.5.2010 kl. 15:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.