24.4.2010 | 10:13
Heilbrigði jarðar, hommar og ásatrú
Ég upplifi mig svolítið sem eldfjall þessa dagana. Hef aðeins ofhitnað, reynar mjög mikið en þá er að láta hitann út gjósa og kæla sig. Það er merki um heilbrigði. Það segja þeir að minnsta kosti á vísindavefnum.
Það þarf aðeins að upplýsa þetta lið í Rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni (rangnefnið það) að eldfjöll gjósa ekki vegna þess að það eru hommar og ásatrú í heiminum.
Einhverjir virðast hafa skrópað í landafræðitímum, eða lesið Biblíuna of bókstaflega kannski? Einvers staðar varaði ég við, og ekki einu sinni eða tvisvar, heldur oftar að Biblían væri varasamt rit til dreifingar og ekki mætti setja samansemmerki milli hennar og orðs Guðs, en það kostaði 200 athugasemdir eða svo.
En hvað um það, verum heilbrigð - gjósum reglulega og látum hitann út, öndum eins og móðir jörð, sem er síst minna merkileg en "faðir himinn" ..
Öll dýrin í skóginum geta ekki verið vinir, en vonum og lifum í þeirri trú (rétttrú?) að mennskan geri okkur það kleift að vera vinir, óháð kynhneygð og/eða trú.
Eldfjallið andar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Witness the delusion of religion vina mín...
DoctorE (IP-tala skráð) 24.4.2010 kl. 11:38
Já öndum með nefinnu eins og móðir jörð er að gera núna. Látum hverjum degi nægja sína þjáningu og tökum því með skipulagi og æðruleisi þegar hún verður móð.
Hrólfur Þ Hraundal, 24.4.2010 kl. 12:05
Ásdís Sigurðardóttir, 24.4.2010 kl. 15:03
Knús á þig Jóhanna mín.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 26.4.2010 kl. 18:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.