25.10.2009 | 12:59
"YES Woman" vika ..
I gærkvöldi átti ég skemmtilega samveru með samstarfsfólki, þar sem Bragi Þór samstarfsfmaður og konan hans Christina, voru búin að undirbúa skemmtilegan leik, einhvers konar Pirate Murder Mystery, sem gerðist á "The Salty Sea Dog" eða reyndar um borð í Humarskipinu sem er veitingastaður hér niður við höfn.
Stemmningin hafði verið stigmagnandi, við höfðum safnað í "fjársjóð" á kaffistofunni. Allir komu með eitthvað sem þeim fannst eiga heima í fjársjóðnum, en þar enduðu seðlar og mynt af ýmsum uppruna, skartgripir og úr, bikarar, sælgæti o.fl.
Ég ætla ekki að fara nánar út í leikinn, en vil minna á hversu mikilvægt er að andi sé góður á vinnustað. Gefin hefur verið út bókin Fiskur, sem er nokkurs konar dæmisaga um það hvernig hægt er að breyta móral á vinnustað. Mottó þessarar bókar m.a. að taka sjálfan sig ekki of hátíðlega en taka starf sitt hátíðlega.
Vinnustaðurinn minn er skóli, nemendur hafa oft talað um það við mig hversu þeim finnist góður starfsandi meðal kennara smita til nemenda. Ég er ekki að tala um að það þurfi endalausar sjóræningjaveislur til að halda uppi vinnuanda, það eru alls konar smáatriði sem bæta braginn. Til dæmis að hafa uppi á vegg töflu með afmælisdögum o.fl. Alls konar litlir hlutir sem ég hvet fólk til að lesa um í bókinni Fiskur.
Eins og ég skrifaði áðan þá söfnuðum við í fjársjóð á kaffistofunni, en hinn eiginlegi fjársjóður hvers fyrirtækis liggur auðvitað í mannauðnum, í því sem sem fólkið hefur fram að færa. Það er oft snúið að virkja þann mannauð sem best, láta hann ekki liggja á kistubotninum. Kúnstin er að sjá hið jákvæða í fari hvers og eins og virkja það, en ekki einblína á það neikvæða og vökva það í huga sér þannig að það verði að einhverju skrímsli.
En hvers vegna þessi titill á blogginu "YES Woman" vika .. Jú, það er vegna þess að ég ætla að prófa að fara af stað í þessa viku með því hugarfari að vera extra jákvæð. Ég á það til að detta í smá drunga, eins og við reyndar flest. Svo þetta er bara tilraun; Jákonuvika hefst því núna, og býð þeim sem vilja að sjálfsögðu að taka þátt í tilrauninn með mér, ekki síður karla en konur.
YES Woman and YES Man
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.