Hafragrautur borðaður með nautn og núvitund ....

Hefur þú íhugað að hvernig þú borðar gæti verið spegilmynd af því hvernig þú lifir lífinu?

Það er hægt að gleypa matinn í sig, en það er líka hægt að borða með athygli, reisn og virðingu. Hægt að borða með ást og njóta út í ystu æsar. 

Fólk ver stundum mörgum klukkutímum í að útbúa góðan mat, krydda, smakka til, raða fallega á bakka og svo er hann étinn upp á örfáum mínútum.  Er eitthvað samræmi í því? 

Þetta er svona hálfgerður "shortari" ef þessu er líkt við kynlíf (sem flestir kannast væntanlega við). 

Hvað gerist þegar þú veitir matnum athygli? - Hvernig væri að vakna örlítið fyrr einn morguninn. 

Sjóða vatn, hella grófu lífrænu haframjöli í skál og hella sjóðandi vatni yfir (við spörum pottaþvott)  Leyfa höfrunum að taka sig.  Strá síðan uppáhaldsmúslí yfir, með möndlum, fræjum, berjum eða hverju sem þér þykir gott og toppa svo með niðurskornum ávöxtum jafnvel.  Sletta af mjólk útá (eða rjóma) og svo örlítið agave síróp.   Nammmmi ... 

Svo setur þú hafragrautinn fyrir framan þig, þú hefur slökkt á útvarpi, sjónvarpi, ert ekki með blaðið fyrir framan þig - þú veitir skálinni með grautnum algjöra athygli.  Kveikir kannski kertaljós til að gera stemminguna enn betri. 

Síðan tekur þú fyrstu skeiðina, finnur fyrir bragðinu, höfrunum, möndlunum - greinir þetta í sundur með bragðlaukum tungunnar.  Borðar hægt og nýtur hverrar skeiðar. 

Þarna sláum við margar flugur í einu höggi; njótum matarins, stundum morgunhugleiðslu, upplifum tilfinningar, erum með sjálfum okkur - og góðu fréttirnar eru að ef við borðum oftar svona förum við að finna þegar við erum södd og borðum ekki meira en við þurfum ..  við verðum fullnægð. 

Á sama hátt og við borðum hafragrautinn er hægt að fara að veita öðru því sem er í kringum okkur athygli.  Við getum farið að njóta þess sem við höfum hversdagslega og veita því athygli.  Veita sjálfum okkur athygli (ekki gleyma því).

Gleypum ekki lífið, heldur veitum því athygli, himninum, jörðinni, náttúrunni, andrúmsloftinu .. og okkur sjálfum.  Allt þetta er borið fram fyrir okkur, búið að vanda til sköpunarinnar, en við eigum það til að gleypa hana í okkur án þess að veita henni athygli.  Njótum okkar og njótum lífsins. Við þurfum ekki að leita langt yfir skammt, það er svo margs að njóta í umhverfi okkar. 

Hvort sem þú borðar einfaldan hafragraut, eða svona "fancy" eins og ég lýsi hér þá er það aðferðafræðin sem skiptir mestu máli. Hvernig við borðum, hvernig við njótum.  Við getum notið hversdagslegs hafragrauts og líka með tilbreytingunni.  

Lífið er hafragrautur .. 

(- eða morgunkorn að eigin vali , ef þú borðar ekki hafragraut ;-)) ... 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þú ert alveg frábær Jóhanna, það sem þér dettur í hug að ala okkur á, gleðiríku  andlegu fóðri. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2011 kl. 10:49

2 Smámynd: K.H.S.

Eg kæli hafragrautinn og blanda hann 50 50fty með skiri. 

Berjaskir eða vanillu er  mjög gott.

K.H.S., 28.10.2011 kl. 10:59

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Takk Ásthildur mín, - þetta er svo stórgaman að átta sig á því hvernig við getum notið þess smáa með því að veita því athygli.  Þakka það sem við höfum, en ekki vera alltaf með hugann við það sem við höfum ekki ;-) ..

Og já, andlega fóðrið er víst ekki síður mikilvægt en hið líkamlega, hressir bætir og kætir.

Jóhanna Magnúsdóttir, 28.10.2011 kl. 12:03

4 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Gaman að heyra af mismunandi útgáfum af hafragraut og takk fyrir bloggvináttu Kári kuldaboli. ;-)

Jóhanna Magnúsdóttir, 28.10.2011 kl. 12:04

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já það er nákvæmlega alveg hárrétt.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.10.2011 kl. 12:37

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hafragrautur er eitthvað sem ég fæ aldrei leiða á.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.10.2011 kl. 12:40

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Ásdís, það segir mikið um þig ;-) .. lífsglaða kona!

Jóhanna Magnúsdóttir, 28.10.2011 kl. 12:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband