Vinkona

Hún vakti mig með léttu banki á rúðuna.
Ég vissi að hún var fyrir utan,
svo ég sveipaði utan um mig morgunsloppnum
og opnaði út í garð ..
Þar var hún svo unaðsleg og fersk ..
Ég andaði ilmi hennar að mér ...
Hún strauk mér ofurblítt um vangann,
eins og henni einni er lagið -
og snerting hennar færðist niður á bringuna
Ég fann vel fyrir henni og varð rök ..
Já svona er að eiga vinkonu
sem heimsækir mig á hverjum degi
nær undantekningalaust ...
Þessi vinkona heitir Rigning ..
mbl.is Hellirigning í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband