Vantrúar- og kristinnar trúar, Já - og Nei trúar fólk sameinast í bænahring fyrir IceSave á Ingólfstorgi í hádeginu í dag

 fri_arsulur.jpg

Lítill fugl hvíslaði því að mér að við ættum von á hópi fólks úr ólíkum áttum, pólitískt, ópólitísk, trúar og vantrúar, og að sjálfsögðu Já- og Nei sinnum til að mynda hring á Ingólfstorgi og biðja fyrir bestu mögulegu útkomu í IceSave málinu.

Þetta eru mjög áreiðanleg skilaboð sem hægt er að treysta, enda fuglahvísl ávallt óbrigðul og óskeikul (sem páfinn) fréttauppspretta sbr. smáfugla AMX

Öll sverð munu slíðruð, múrar milli manna felldir og farið verður með möntruna:

"Allt sem við viljum er friður á jörð" 

Ath! Yoko mun því miður ekki geta verið á svæðinu, en John hefur boðað komu sína (skv. Sigurði Haraldssyni, eldgosaspámiðli) og búið er að setja ljósaseríur á steinsúlurnar sem tákna öndvegissúlur Ingólfs og munu þær gegna hlutverki friðarsúlna í dag. Hjalti Rúnar, sérlegur áhugamaður um bænahald,  mun leiða samkomuna. 

You Save - I(ce)Save Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jónína Dúadóttir

Ég mæti... sjáumst

Jónína Dúadóttir, 1.4.2011 kl. 06:50

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Sjáumst þá sprækar!

Jóhanna Magnúsdóttir, 1.4.2011 kl. 07:01

3 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

p.s. um að gera að breiða út gleðiboðskapinn!

Jóhanna Magnúsdóttir, 1.4.2011 kl. 07:54

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Er þessi viðburður í tilefni dagsins?

Guðmundur Ásgeirsson, 1.4.2011 kl. 08:41

5 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

"Carpe Diem" ..

Jóhanna Magnúsdóttir, 1.4.2011 kl. 08:55

6 identicon

Eh 1. apríl?!

Ásdís Emilía Björgvinsdóttir (IP-tala skráð) 1.4.2011 kl. 09:10

7 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Jóhanna Magnúsdóttir, 1.4.2011 kl. 09:29

8 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

"Breaking News" .. Justin Bieber mun leiða sönginn!

Jóhanna Magnúsdóttir, 1.4.2011 kl. 10:44

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahahaha vildi að þetta væri virkilega að gerast.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.4.2011 kl. 11:30

10 Smámynd: Guðsteinn Haukur Barkarson

Vantrú og bæn -  nefnt í sömu andrá gat ekki gengið upp Jóhanna! En vel gert í tilefni dagsins!

Guðsteinn Haukur Barkarson, 1.4.2011 kl. 12:04

11 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Sammála þessu Ásthildur!

Jóhanna Magnúsdóttir, 3.4.2011 kl. 21:11

12 Smámynd: Jóhanna Magnúsdóttir

Takk Haukur, ... varð að nota tækifærið.

Jóhanna Magnúsdóttir, 3.4.2011 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband