Færsluflokkur: Lífstíll

Þögli morðinginn .. of hár blóðþrýstingur! -

Ég má til með að vekja athygli á mjög áhugaverðum pistli fyrrverandi nemanda míns úr Hraðbraut, -  Elísu Elíasdóttur

Elísa kynnir blogg sitt m.a. með: 

"Nemi í Lífefna- og sameindalíffræði við HÍ. Hef mikinn áhuga á heilsu og næringu. Þetta er vettvangur minn til að miðla því sem ég er að kynna mér og læra tengt heilsu."  

Morðingja (Þögla eða hávaðasama ber að draga úr greni sínu svo endilega kynnum okkur þennan). 

Smellið HÉR til að lesa blogg Elísu um háþrýsting og mataræði. - 

 

Smellið HÉR til að lesa blogg Elísu um heilnæmi lárperu (Avocado) 


Með en ekki á móti ..

Það er gott og uppbyggilegt að lesa þetta viðtal við Helga P. -  Þar sem í gegn skín jákvæðni hans og æðruleysi sem hann nýtir til að lifa með en ekki á móti. -

Um leið og við förum að berjast við áföllin lendum við í stríði og stríð leiðir af sér stríð. - Ég veit það er hið algenga að tala um að vera í baráttu við og t.d. að hafa unnið stríðið við krabbann,  en í raun er það ekki svoleiðis. -  Við vinnum með krabbameinið okkar,  við förum í samtal við aðra en ekki stríð eða baráttu við þá,  - ef við breytum þessu viðhorfi,  að lifa með en ekki á móti, þá eigum við möguleika á að upplifa æðruleysi,  en æðruleysi þýðir m.a. ró eða kyrrsemd.  Hæfileg ró og hæfileg kyrrð. - Jafnvægi.- 

Með því að þekkja "óvininn" - eða kynnast honum með því að skilja hann, - hvort sem óvinur er atburður, sjúkdómur eða manneskja,  öðlumst við þekkingu á honum og orsökum þess að hann "ræðst að okkur."  - Krabbamein er frumur í eigin líkama sem fara að breyta sér,  manneskja sem ræðst að okkur með illsku er yfirleitt veik eða í vanlíðan  að einhverju leyti. -  Það er þannig sem við förum að "elska" óvininn, - vinna með honum en ekki móti. - Skilja hann, uppruna hans og eðli. -  Þannig verðum við alltaf sigurvegarar. -

 "Sá sem hefur þekkinguna er öllum dygðum prýddur." -  Plató 

Þekkingin er skilningur, þekkingin er að setja sig í spor náungans,  þekkingin er samhugur - en ekki dómharka. -  Sá sem hefur upplifað mikið og lært mikið, hefur mikinn þroska og býr yfir mikilli þekkingu. -   Þekkingu sem byggir fyrst og fremst á lífsreynslu viðkomandi. 

 "Þú býrð mér borð frammi fyrir fjendum mínum" - segir í Davíðssálmi 23.  Þessir fjendur koma úr öllum áttum eins og áður sagði, - en í sálminum kemur líka fram að við tökum full hugrekkis á móti því sem kemur, "jafnvel þótt ég fari í gegnum dimman dal" -   og aldrei erum við ein. -  Þessi ganga er ekki stríðsganga,  heldur ganga í ljósi kærleikans. - 

"Hef lært að lifa með áföllunum" ... segir Helgi. 

Lífið er lærdómur, lífið er  skóli, sum koma hingað bara og eru í leikskóla alla ævi, önnur takast á við erfiðari skóla og á hærra menntunarstigi, - sumir útskrifast eflaust með fimm háskólagráður eða fleiri í skóla lífsins. -  En viðhorf okkar til skólans, til kennaranna, til námsins, til annarra nemenda og síðast en ekki síst til okkar sjálfra,  getur skipt öllu máli,  alveg eins og við þekkjum úr okkar eigin skólavist. - 

En segi að lokum eitt stórt TAKK - Helgi Pétursson, við þurfum fleiri svona góðar fyrirmyndir. -

cappuccino.jpg 


mbl.is Hef lært að lifa með áföllunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eðlilegt að giftast sjálfum sér? -

Auðvitað er ég ekki að tala um brúðkaup með öllum pakkanum, - en svona næstum því í raun.  Hugarfarslega að gefast sjálfum sér og bera ábyrgð á sjálfum sér og hamingju sinni, en ekki ætlast til að önnur manneskja taka alla ábyrgð á okkar eigin hamingju "for the rest of our lives, until death do you apart" .. eða þannig. 

HÉR er hægt að smella á pistil sem er þessu tengdur. - 

 


Aldrei aftur megrun? ...

 Í stað þess að hamast á arfanum (offitunni) aftur og aftur og aftur - þá þarf rót-tækari aðgerðir... Það er að segja fara í ræturnar og skoða af hverju? -  Af hverju offita? - Af því að umgengnin við mat er eitthvað skökk, er það ekki? -   og af hverju er umgengnin skökk? -  

 

Orsakir offitu: 

1.  Endurteknir megrunarkúrar þar sem þú léttist um X kíló en fitnar svo aftur um X plús xx þegar kúrnum sleppir. - 

2.  Tilfinningaát - borðum þegar við erum leið, einmana, óhamingjusöm .... o.s.frv.   vantar okkur þá mat eða að koma lag á andlegu hliðina fyrst? .. 

 3.  Rangt forrit -  t.d. neikvæð innri rödd og ótti við að fá aldrei nóg eða vera nóg. - 

 Hægt er að lesa meira ef smellt er HÉR 

 

Annars fjallar pistillinn í stuttu máli um það að fara að njóta lífsins og matarins. 

 

Njóttu meðvitað hvers munnbita! .....

  • Þú getur ekki notið nema að vera almennilega svöng/svangur
  • Þú getur aðeins notið þess sem þér finnst í alvöru gott
  • þú hættir að njóta matarins þegar líkaminn er saddur


Einn súkkulaðimoli borðaður með nautn gefur okkur miklu meiri fullnægju en heil plata borðuð í meðvitundarleysi. -

Þannig er lífið allt .. og ein rós gefin af einlægni og kærleika segir meira en bílfarmur af blómum gefinn af sýndarmennsku ...

awesome_roses-wide.jpg

 

 


Ertu kvíðin/n? -

Í Davíðssálmi nr. 23 er þessi ljóðlína:

"Þó ég fari um dimman dal óttast ég ekkert illt,  því þú ert hjá mér."

Hvað þýðir það fyrir þig?

Rithöfundurinn Paulo Coehlo segir að ef að mikilvægustu orðin til að kunna séu "Hjálp" og "Takk" -

Að biðja um hjálp og að muna að þakka fyrir. - Ekki síst það sem við höfum nú þegar. -

Ég býð nú upp á þriggja skipta hugleiðslunámskeið út frá 23. Davíðssálmi, þar sem farið er í textann og síðan í leidda hugleiðslu út frá honum. -

Hægt er að lesa meira um það og skrá sig ef smellt er HÉR. -

Verðinu er haldið í algjöru lágmarki, svo að sem flestir geti nýtt sér. -

Einnig get ég boðið upp á að koma á vinnustaði og vera með hugleiðslu, það þarf ekki að vera á trúarlegum nótum. - Aðeins gjörhygli og slökun,  eftir hvað hentar ;-)

photogrpah-a-rainbow.jpg


Við erum ekki skuldirnar okkar ..

og reyndar ekki eignir okkar heldur,  en nánar má lesa um það HÉR  á blómasíðunni minni. -

Leyfi þessu ljóði að fljóta með, en það varð til í morgun þegar ég var í göngutúr hér í Vesturbænum með Simba ömmuhund. - 

Ég var úti að ganga og andaði að mér ferska loftinu
blandað regndropum sem sögðu í sífellu "góðan dag" -
þá sá ég drullupoll og fór í ferðalag í tíma
og í örskamma stund langaði mig að setjast í pollinn
og vita hvort að mamma tæki ekki á móti mér
heima - með ristað brauð og heitt kakó! 

Heart

 


HUGREKKI OG TRÚ ...

Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli.

Reinholdt Niebuhr

Fáar bænir segja meira í ekki fleiri orðum, eins og æðruleysisbænin. -

Ég verð að viðurkenna að í fyrstu þuldi ég þessa bæn án þess að tileinka mér hana, eða hugsa djúpt , og hugsaði ekkert endilega hvað væri þarna á bak við. -

Fyrsta orðið/hugtakið í bæninni er Guð, - því er þetta bæn til Guðs og með því erum við að biðja um hjálp sem er gjöf Guðs.-

Þessi Guð er sá/sú/það Guð sem er bara Guð út frá okkar sjónarhorni, eitthvað stærra okkur, eitthvað máttugra. Eitthvað sem bara ER. -  Eitthvað afl sem vill okkur vel og getur elskað okkur skilyrðislaust, en það er meira en við yfirleitt getum sjálf.  Þess vegna, m.a.,  er það stærra og meira.

Við getum líka séð þetta út frá því sjónarhorni að Guð sé ský, og við séum regndroparnir sem lendum á jörðinni, verjum þar tíma með öllum hinum regndropunum - og svo gufum við upp aftur og sameinumst skýinu. -  Skýið er alltaf stærra, en sama eðlis. Það harmónerar líka alveg við það að vera sköpuð "í Guðs mynd" ...

En útgangspunkturinn er að það segir ÞÉR enginn hvað og hvernig Guð er,  því að þrátt fyrir að við séum öll eins að því leyti að við erum líkami, sál og hugur, erum við öll einstök.  (Á sama hátt og engir tveir dropar eru 100%  eins í laginu)

ÞAKKLÆTI

Hinn djúpvitri höfundur Paolo Coehlo sagði einhvers staðar að ef við kynnum aðeins tvö orð, "hjálp" og "takk" á öllum tungumálum myndum við aldrei týnast. -   Stundum erum við eins og tveggja ára barnið sem er að reyna að reima á sig skóna, - við segjum "ég get" en höfum ekki enn kunnáttuna.  Að sjálfsögðu höldum við áfram að reyna, en fáum hjálp þar til við höfum náð þeim þroska að geta reimað okkar skó. -

Að sama skapi, er mikilvægt að þakka fyrir, þakka fyrir það sem við höfum nú þegar og þakka fyrir þegar okkur er hjálpað. -

 Þakklæti elur af sér þakklæti. -

ÆÐRULEYSIÐ

"....æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt.. "

Við biðjum um gjöf æðruleysis (serenity) til að öðlast sátt eða samþykkja  það sem er og við getum ekki með nokkru leyti breytt. -  Æðruleysið er í mínum huga, ró, friður, jafnvægi, sátt, dýpt, kyrrð.  Það sem við fáum stundum með því að stunda yoga, bæn, íhugun, hugleiðslu, slökun, með sporavinnu, úti í náttúrunni o.s.frv. -

 Við þurfum öll að finna okkar leið að æðruleysinu. -  En munum að leiðin er inn á við en ekki út á við. -  Við þurfum að nálgast okkur en ekki fara frá okkur. -

KJARKURINN

"....kjark til að breyta því sem ég breytt .... "

Það þarf kjark til að breyta, kjark gagnvart sjálfum sér, kjark gagnvart innsta hring og gagnvart samfélaginu. -

Þegar okkur langar að breyta heiminum, þá byrjum við á byrjuninni: okkur sjálfum -  Það þarf hugrekki til þess.

Við þurfum að hafa nægilegt hugrekki til að ganga inn í óttann, og þá er gott að vita að við göngum ekki ein og þá leitum við aftur til Guðs sem gengur með okkur. -  Höfum nægilega trú til að gera það sem við óttumst. -  Horfast í augu við okkur sjálf og náunga okkar.  Náunginn getur verið einhver í fjölskyldunni, vinahóp eða eitthvað ókunnugt fólk. Fólk sem þú býst við að leggi dóm á það sem þú ert að gera. -  Við getum einnig verið okkar hörðustu dómarar og því þurfum við að mæta eigin dómhörku með hugrekki. -  Þá er gott að hafa Guð með sér, því að Guð elskar skilyrðislaust. -

VAL

Samfélagið tekur okkur ekki endilega vel þegar við förum að fella af okkur hlekki skammar og ótta. -  En við getum valið á milli frelsisins að vera við sjálf og fangelsins að þurfa að lifa eftir því sem aðrir vilja og segja okkur. -

(Að sjálfsögðu verðum við að vera ábyrg gjörða okkar, og virða þau sem eru í kringum okkur, og sinna þeim skyldum sem við höfum tekið að okkur, sérstaklega þegar um börn er að ræða, og okkar frelsi má ekki felast í því að hefta aðra eða beita þá ofbeldi).

Kjarkurinn kemur frá kjarnanum, - frá hjartanu sem yfirleitt veit hvaða leið er best, en við þurfum að sjálfsögðu að vera viðstödd kjarnann til að heyra hvað þar hljómar. -  Ef röddin í höfðinu er hávaðasöm, eða raddirnar sem koma að utan, truflar það oft rödd hjartans. -  Oft er talað um "úrtöluraddir" - og áhrif þeirra. -  Úrtöluröddin eða niðurrifsröddin er líka okkar innri rödd, sem stundum hlustar á úreltar eða útrunnar hugmyndir um okkur sjálf og segir með hásum rómi "Hvað þykist þú vera?" -  "Þú getur ekki" .. o.s.frv.  Hverju ætlar þú að trúa? -

"... og vit til að greina þar á milli."

Hvernig greinum við á milli þess sem við getum breytt og þess sem við getum ekki breytt? -

Sumt er borðleggjandi;  Við getum ekki breytt fortíðinni, en við getum breytt viðhorfi okkar til fortíðarinnar. -

Þegar við glímum við  vandamál  þurfum við fyrst að sjá vandamálið, svo orsakir þess,  þá hvaða lausnir eru í boði - er hægt að breyta eða þarf ég að sættast við aðstæður mínar? -  Og hvað felst í sáttinni?

Við verðum að taka ákvörðun, og við þurfum vit til að velja hvort og hverju við getum breytt. -

Gremja yfir stöðu okkar, eyðir orku okkar og heldur aftur af eldmóði okkar.

Í stað þess að fyllast gremju yfir aðstæðum, samþykkjum við þær og byrjum frá þeim punkti að gera eitthvað í aðstæðunum. -

Einhver gæti farið að berja sig niður fyrir að vera búinn að koma sér í vondar aðstæður, hafa farið illa með líf sitt - hingað til - en það að berja sig niður byggir ekki upp -  Við berjum ekki sáttina í okkur.  Það hjálpar heldur ekki til að fara í ásakanagírinn, jú - það getur vel verið að það hafi verið komið illa fram við okkur, en það að fyllast gremju yfir því, bitnar ekki á þeim heldur okkur.

NÚIÐ

Að sættast við það sem er, þýðir ekki að við séum að gefast upp, heldur að samþykkja núið, - samþykkja og gera okkur ljósa stöðu okkar,  sjá raunveruleikann til að geta haldið áfram. -

Þetta er að doka við, viðra fyrir okkur útsýnið, spyrja til vegar og leita hjálpar ef það þarf, en ekki vaða áfram bara eitthvað út í bláinn og á sama vegi og kom okkur í villuna.

Með samþykkinu á því sem er, stöðvum við, sorterum það sem við þurfum að taka með okkur,  hvað ætla ég að taka með mér og hverju ætla ég að henda.

Með sáttinni erum við lögð af stað nýja leið, með því höfum við breytt án þess að breyta. -  Eins mótsagnakennt og það hljómar. -

Við getum breytt okkur, hugarfari okkar og sjónarhorni.

Ef við stöndum inní herbergi og horfum upp, sjáum við aðeins upp í loft, en ef við göngum nokkur skref, út um dyrnar sjáum við himininn. -

Ef við förum með þetta hugarfar inn í líf manneskju sem er búin að missa tökin á mataræði, peningum, sambandi, vinnu .. eða hverju sem er,  þá þarf hún fyrst að opna augun og samþykkja ástandið,  viðurkenna það en ekki afneita,  samþykkja það eins og það er og sættast við - fyrirgefa sjálfri sér fyrir að vera komin þangað sem hún ætlaði sér ekki,  skoða hvaða leið hún fór og hvað það var í hennar lífi sem leiddi til þess að hún villtist af leið.

Þá er farið í það að sortéra,  greina og átta sig á því hvað það er sem leiddi hana afvega og hvað það er sem hélt henni þó inni á veginum sem hún vildi. -

Það þarf að velja á milli þess sem er enn nýtilegt og þess sem er löngu orðið súrt og komið langt fram yfir dagsetningu.  Var jafnvel ónýtt frá upphafi. -

Svo þegar við höfum staldrað við, þá er að halda áfram með þann kjark að sleppa þeim hækjum sem í raun voru hlekkir sem héldu okkur niðri. -

Við þurfum að lifa í þeirri trú að Guð styðji við okkur,  þegar okkur finnst við vera að detta. -

Það má nota líkinguna af barni sem er að læra að hjóla án hjálparadekkja. Foreldrið heldur við, og svo einn daginn hjólar barnið og heldur að foreldrið haldi við, en um leið og það uppgötvar að foreldrið heldur ekki lengur,  þá missir það kjarkinn og dettur. -  En auðvitað getum við líka treyst því að mamma eða pabbi styðji okkur á fætur á ný. -

En hversu velviljuð sem foreldrar okkar eru, með allan sinn stuðning og elsku,   þá erum það alltaf við sjálf sem þurfum að læra að hjóla ...

Verð með námskeið - hugleiðslu út frá þessum íhugunum. - Smellið HÉR til að lesa meira.

Hvert fara brostin hjörtu? ...

Skrifaði um það HÉR

candle-flame-1-ajhd.jpg


mbl.is Whitney Houston látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framhjáhald - skilnaður - sorgarferli - þroskaferli - vaxtaverkir og bíltúr í Borgarfjörðinn. -

Þegar ég var barn og kvartaði, fékk ég oft svarið að þetta væru nú bara vaxtaverkir! - Ég hef aldrei fengið það á hreint hvort að vaxtaverkir eru raunverulega til eða ekki, en ég hef fundið það á eigin skinni að vöxturinn til þroska er sársaukafullur. -

Það er þegar við göngum á veggi, dettum í holur, rekumst á .. og þar fram eftir götunum sem við fáum oft stærstu tækifærin til þroska og vits. - Og kannski er lífið bara skólaganga til skilnings? -

Það er erfitt að setja sig í spor annarra án þess að hafa sömu eða svipaða reynslu. - Þess vegna er reynslumikið fólk, fólk sem hefur gengið í gegnum sorgina oft betri sálusorgarar en það sem hefur ekki gert það.

Sorgin getur verið allt frá litlum ósigrum upp í mikinn harm, og næstum því , eða algjörlega óbærilegan. -

Sem betur fer er engin manneskja það "menntuð" í sorginni að hún geti sett sig í spor allra.

Ég á nokkar sorgir að baki, og ein af þeim er skilnaður við maka - og það hef ég upplifað oftar en einu sinni, en þó með ólíkum hætti. -

Í þessum pistli ætla ég að fjalla um þann sorgarferil sem auðvitað verður þegar upp er staðið að þroskaferli.  Þessi pistill er blanda af minni eigin reynslu og reynslu margra kvenna sem ég og Kjartan Pálmason, ráðgafar hjá Lausninni höfum fengið á námskeið, - en eitt slíkt námskeið verður haldið í Lausninni 18. febrúar nk. kl. 9:00 -16:00 með fjögurra kvölda eftirfylgni í hópum. - sjá nánari upplýsingar og skráningarform  www.lausnin.is

Ef að fólk fer ekki í samband á réttum forsendum í upphafi, hefst skilnaðarferlið við fyrstu kynni. -  Ástin er góð, en hún getur blindað - og við förum oft að gefa afslátt af okkur sjálfum, okkar þörfum, væntingum og gildum fyrir makann. -

Við mættumst, horfðumst í augu og frá fyrsta kvöldi vissum við að við yrðum hjón. -  En það var svo margt sem við vissum ekki, og margt sem ég vissi ekki fyrr en eftir skilnað tuttugu árum seinna, og enn er ég að öðlast skilning á ástæðum þess að skilnaður var óumflýjanlegur. -

Það voru tvö særð börn sem mættust, sem fóru að reyna að fylla upp í skörð hvers annars og sögðu "elskaðu mig" - tvö börn að fullkomna sig með hinu. Tvö börn sem ekki kunnu að elska sig sjálf.   Í dag veit ég að það þarf tvo heila einstaklinga en ekki tvo hálfa.  - En það eru svo sannarlega ekki skilaboðin sem heimurinn veitir. - "Can´t breath without you" .. segir í söngvunum. -

Þetta getur gengið svo langt í að uppfylla þarfir makans, að við setjum okkar eigin þarfir algjörlega til hliðar, og öfugt, við ætlumst til þess að makinn setji sjálfan sig til hliðar til að þjóna okkur. -

En hoppum áfram í tímann, hjónaband sem hefur varað í mörg ár, hjónabandsblómið er orðið skrælnað því að gleymst hefur að vökva, - allt annað en sambandið sett í forgang.  Samveran er orðin vélræn og það sem er miklvægast af öllu, gagnvæm virðing og væntumþykja gufuð upp.

Það er erfitt að bera virðingu fyrir aðila sem ber ekki virðingu fyrir sjálfum sér. -  Sjálfsvirðing er því grundvallandi til að um gagnkvæma virðingu sé að ræða. -  Það er líka erfitt að elska, ef við elskum okkur ekki sjálf - ástin svokallaða er þá líka orðin eigingjörn ást en ekki kærleiksrík og óeigingjörn. "Þetta er MINN maki" - og afbrýðisemin kviknar því við erum óörugg, og kannski ekki að ástæðulausu. -

Ef við gefum afslátt af eigin löngunum og þrám, þá erum við ekki sönn lengur, - ef við erum bara í að uppfylla langanir og þrár makans þá er sambandið orðið eins og þarfasamband en ekki ástarsamband.-   Svo fer þetta oft út í þann farveg að annar aðilinn fer að stjórna hinum með kynlífi. 

Kynlíf fyrir mér er meira en hopp upp í rúmi, eða úti móa. Slíkt er allt í lagi með, en eins og hjónaband byrjar að spinnast á fyrsta degi sambands (ef úr því verður) - lifnar kynlífið líka á fyrsta degi sambands. -  Kynlífið er samofið hversdagslifinu, hvernig við umgöngumst hvert annað.  Kynlífið er stök rós, gefin af engu tilefni. Kynlífið er nudd með olíu. Kynlífið er göngutúr í rigningunni, eða bíltúr í Borgarfjörðinn .. með okkar maka.

Maki sem upplifir niðurrif og andlegt ofbeldi yfir daginn, eða áhugaleysi yfir hennar daglegu þörfum, - missir löngun til að stunda samfarir með maka sínum, - makinn verður argur þegar hinn neitar,  eða  kynlífið er á þeim forsendum að gera makann "góðan" - en ekki vegna þess að þú finnur til löngunar .. kannski verði hann ekki eins leiðinlegur daginn eftir, eða jafnvel að hann verði skemmtilegur og sé tilbúinn að gera eitthvað skemmtilegt saman, eða bara ekki vera leiðinlegur? -  Kynlíf er rangt ef það verður skylda en ekki uppfylling eigin þarfa.  Eða í sumum tilfellum undirliggjandi hótun sem felst í því að það verður að gefa makanum að borða svo hann fái sér ekki að borða annars staðar!..

Sambönd þurfa neista, og það þarf tvo aðila í parasamband sem þurfa bæði að leggja til neistann og upplifa hann. - 

Okkur á að þykja gaman að koma maka okkar á óvart, deila með honum því sem á dynur og koma hreint til dyranna. -

Óheiðarleiki er einn versti óvinur sambanda. -

Segjum að hjónabandið sé orðið eitthvað þunnt, - freistingarnar blasa við útum allt, og - jú, annar aðilinn - jafnvel bæði er farinn að líta aðila utan hjónabandsins hýru auga. -

Það er þarna sem á að segja STOP - og fara að skoða hjónabandið. - Leita hjálpar, leita að ráðgjöf.  Áður en sá stóri skaði er skeður að annar aðilinn fer og leitar í fang annarrar konu/karls hvort sem það er tilfinningalega eða líkamlega. -  Því þá er sambandið rofið, traustið er fokið út um gluggann.  Það er í raun hinn eiginlegi skilnaður.

Það þarf hugrekki til að tjá sig upphátt um það að maður sé óánægður í sambandi og sé farin/n að horfa í kringum sig til að fá útrás fyrir tilfinningar eða kynlíf eða bæði. -

Ástæðan fyrir hræðslunni við að segja er oft sú að í raun er fólk hrætt við að missa maka sinn. - Segir sjálfu sér að það vilji ekki særa hann með því að segja, en gerir sér ekki grein fyrir að sárið af vantraustinu er þúsund sinnum stærra og alvarlega en að koma heiðarlega fram. - Bæði er sárt og erfitt, en sannleikurinn er það sem frelsar. 

Lygin endar iðulega og oftast með ósköpum.  Snjóboltinn verður að snjóflóði.

Það er nefnilega alls ekkert víst að sá aðili sem er að leita út á við vilji skilja. - Hann vill bara bæði eiga konu/mann heimili börn, OG einhvern til hliðar til að halla sér að.-   

Þetta reyna margir, stundum vegna ófullnægju tilfinningalega og/eða kynferðislega,  eða vegna spennufíknar.  Framhjáhaldsfíkn er orð sem er til. - Þá er það bara spennan og fixið sem með því fæst sem sóst er eftir. -

Fíknin verður til eins og aðrar fíknir - vegna tilfinninga sem ekki hefur verið horfst í augu við, stundum bældra eða þeirra sem ekki hafa verið ræddar. Hér hef ég skrifað um framhjáhald með öðrum aðila, en það er líka hægt að "halda framhjá" á annan máta, t.d. með áfengi, með vinnu, með eilífri fjarveru og vera ekki til staðar. -  Andleg fjarvera er ein tegund andlegs ofbeldis, - hún þarf ekki að vera "viljandi" - en er samt vond fyrir þann sem fyrir henni verður. -  

Ef að fólk er ekki tilbúið til að vinna í sér, sjá sár sín til að breytast, þá er eina leiðin að skilja,  sérstaklega ef að hjónabandið er orðið vont og skemmandi fyrir báða aðila og ef að börn eru í spilinu,  smitar það að sjálfsögðu til þeirra. -

Það er sorg að skilja, það er draumur sem deyr, - þetta átti ekkert að fara svona og kannski búið að hanga á fingrunum á brúninni í langan tíma. - Án þess þó að kalla á hjálp. -  

Þegar traustið er brotið eru tvær leiðir, - ef að báðir aðilar eru tilbúnir að leita sér hjálpar má e.t.v. ná að tvinna sambandið upp á nýtt, en það þarf gífurlegan viljastyrk og auðvitað ást til þess. -  Hin leiðin er skilnaður og hvor um sig vinni í sér, að gera sig heila/n til þess að einmitt fara ekki með sjálfa/n sig inn í næsta samband á sömu röngu forsendum og í fyrsta sambandið.  Þ.e.a.s. án þess að vera búin/n að trúlofast sjálfum/sjálfri sér.-  Við segjumst vera tilbúin að elska, virða og samþykkja maka okkar þegar við játumst honum/henni, jafnvel frammi fyrir Guði.

 - En gleymum megin forsendunni, þ.e.a.s. að vera búin að játast okkur sjálfum. -   Komast í samband við okkur sjálf. -

Þegar við föllum á þessu sameiginlega prófi, þá þýðir ekki að dvelja lengi við það að við höfum fallið. - Við þurfum að skoða prófið, hvað gerðum við rangt - og ekki síður mikilvægt, hvað gerðum við rétt!  - Hvað gerði ég rétt, hvað gerði ég rangt.  Hvað gerði hann/hún rétt, hvað gerði hann/hún rangt. -

Munum endilega líka eftir því sem virkaði vel, var gleðilegt og byggði upp.  Kannski hefði mátt stækka þann hluta og minnka hinn? - 

Allt hefur sinn tíma undir sólinni. - Það tekur tíma að syrgja og það er mikilvægt að leyfa sér að syrgja - sjá sárin, til að geta breytt og gert heilt. -  Þannig verður sorgarferli að þroskaferli, og við göngum frá þjáningu til þroska. -

Þroskanum fylgja vaxtaverkir - þá þekki ég - og því er mikilvægt að vera umvafinn vinum og fjölskyldu, og þeim sem við treystum - og það er gott að finna þau sem geta sett sig í okkar spor. -  

"Það er gott að vita ég er ekki ein" .. er algengasta uppgötvun sem konurnar hafa gert á námskeiðunum "Lausn eftir skilnað" ..

Námskeiðin eru ætluð konum,  þar sem það er enn svo að konur eru viljugri og hugrakkari við að leita sér hjálpar. -  En það er í skoðun að bjóða sambærilegt námskeið fyrir karla, komi óskir um það.

Höfum það að lokum alltaf í huga, að það hjálpar okkur ekki að fara í ásökunargírinn (The Blaming game). - "Allt honum að kenna" eða "Allt henni að kenna" .. jafnvel þó að annar aðilinn hafi verið erfiðari, veikari, fjarlægari, brotið trúnað - þá er það yfirleitt skýringin að hann kann ekki önnur viðbrögð, þau eru viðbrögðin sem hann lærði í bernsku.  Viðbrögð sem einkennast af flótta eða feluleik. -  Þess vegna er það að við hjá Lausninni teljum að grunnástæða fyrir hjónaskilnuðum, eða að sambönd gangi illa eða ekki upp, sé meðvirkni.  Ástand sem lærðist á löngum tíma og hófst í bernsku, - jú einmitt þegar við vorum með vaxtaverkina og kvörtuðum og kannski þurftum við bara knús.

 

Knús á þig og takk fyrir að lesa. - 

Jóhanna Magnúsdóttir, guðfræðingur, kennari, ráðgjafi

www.lausnin.is

johanna@lausnin.is

námskeið - einkaviðtöl - fyrirlestrar


Æðruleysið á lífsgöngunni ...

Æðruleysið á lífsgöngunni ..

Posted on February 10, 2012

Mamma mín er til heimilis á hjúkurnarheimilinu Droplaugarstöðum og hefur verið það núna bráðum í tvö ár. - Ég heimsæki hana reglulega, svona u.þ.b. einu sinni í viku og svo erum við systkinin sem búum hér á landi með "heimsóknarkerfi" - þannig að við skiptum helgunum á milli okar. -

Það er erfitt að horfa upp á mömmu sína fjarlægjast.  Mamma er með heilabilun,  sem er kölluð "Vasucalar Dementia" - sem má þýða sem æðaheilabilun, - sem er annar algengast hrörnunarsjúkdómurinn á eftir Alzheimer.  Blóðflæðið minnkar til heilans og því fylgir m.a. að minnið fjarar út og fólk verður utan við sig og ringlað. -

Það er lán í óláni að mamma komst inn á þetta góða hjúkrunarheimili þar sem hún hefur stórt einkaherbergi með dótið sitt, með fullt af myndum af barnabörnunum og sína persónulegu muni. - Þar eru að vísu rúm frá stofnuninni, náttborð og nú það nýjasta; hjólastóll - sem mamma forðast að vísu eins og heitan eldinn.  Það er ótrúlega mikill sjálfstæður vilji í henni og stundum gerir hún hluti sem maður trúir eiginlega ekki að séu henni færir.

Starfsfólkið er að gera sitt besta, og sumt fer langt fram úr sér og má þar helst nefna hana Rósu, sem dekrar við fólkið og er alltaf eins og sólin.

Það eru alls tíu konur á deildinni hennar mömmu og mamma er alls ekki sú "veikasta" og mamma er sem betur fer yfirleitt glöð og sátt. - Það léttir okkur ættingjum hennar heimsóknirnar. Stundum er hún þó þannig að hún getur ekki haldið sér vakandi og það er auðvitað erfiðara að heimsækja hana við þær aðstæður.

Mamma hefur oft verið þannig stödd að við höldum að það sé komið að því síðasta, en ég hef ekki lengur tölu á því hversu oft hún hefur komið "til baka" - en það er á þessum tímum þegar hún er einmitt sem verst,  að það er erfiðast að heimsækja.  Og svo hefur það stundum bara erfið áhrif að heimsækja deildina og sjá hinar konurnar.  Því ekki eru þær allar eins sáttar og mamma. -

Í gær fór ég sem oftar að heimsækja mömmu og þá kom Vala dóttir mín með mér. Við vorum heppnar,  mamma sat frammi í setustofu og var í þokkalega góðum gír, svona miðað við hennar ástand. -

Ég þarf samt einhvern veginn alltaf að hjúpa mig svolítið og ganga þarna inn og út með æðruleysið í huga.  Með sáttina í hjartanu yfir því sem ég fæ ekki breytt,  en um leið þarf ég að minna mig á það sem ég FÆ BREYTT. -

Ég get ekki breytt lífi né ástandi móður minnar. - En eins og ég sagði við Völu mína á leiðinni í lyftunni niður. 

"Við skulum nýta þetta til að átta okkur á mikilvægi þess að lifa lífinu lifandi!  "

Margir upplifa hjúkrunarheimili eins og biðstofu. - En hvað með okkur hin sem erum yngri, frískari, með heilann í lagi (eða svona að mestu leyti í lagi? ;-) ) ..  Erum við nokkuð að lifa lífinu okkar, eins og við séum sitjandi á biðstofu, og eftir hverju erum við að bíða? -

Hvað er það sem hlammar okkur niður í sófann (ekki það að það sé ekki í lagi að velja sófann við og við, og njót þess að hvíla sig) - en svona almennt þegar sófinn er orðinn besti vinurinn? ..

Ég heyrði nýlega setningu sem hefur verið mér hugleikin,  "Put the happiness in front of the carriage" - sem mér finnst gaman að þýða;

"Láttu hamingjuna fyrir framan hestvagninn" ..

Og þá er hamingjan hesturinn sem við setjum fyrir framan hestvagninn, - enda myndum við aldrei setja hestinn fyrir aftan og ætlast til að vagninn drægi hestinn.

Flestir þekkja söguna sem sögð er af indjánahöfðingjanum og baráttu úlfanna tveggja.

Annar þeirra er:
ótti, reiði, öfundsýki, græðgi, hroki, sjálfsmeðaumkun, rógur og svik.

Hinn er:
Gleði, kærleikur, auðmýkt, tillitsemi, gjafmildi, sannleikur og samhugur með öðrum.

Eitt barnanna spurði: Afi, hvaða úlfur vinnur?

Sá gamli horfði alvörugefinn á barnahópinn og sagði:

Sá sem þú fóðrar.

Ef við breytum nú sögunni og setjum hesta í stað úlfa,  hvor hesturinn er líklegri til að dafna og fyllast eldmóði til að draga vagninn? -

Hvað dregur okkur sjálf áfram og hvað dregur okkur niður? -

Hvað er á okkar andlegu næringartöflu? -

Erum við að næra okkur með illmælgi, öfund, skömm, samviskubiti,  baktali, ofbeldi, reiði, neikvæðni, illsku, gremju, ótta, hatri, dómhöru og fleiru í þessum dúr? ...

Eða nærum við okkur með þakklæti, jákvæðni, hugrekki, sátt, elsku, vinarþeli, samhug, samvinnu, trú, von og kærleika? ...

Við þurfum væntanlega ekki mikið vit til að greina þarna á milli, hvort er okkur hollara og hvort veitir okkur meiri hamingju. -

Við vitum öll að hreyfing og hollur matur er góð fyrir heilsuna, en ...... en hvað? -  Við þurfum að vilja og við þurfum að taka skrefin ..

Við sækjum nefnilega í margt af þessu sem er vont og dregur úr okkur, alveg eins og við sækjum í það sem er óhollt fyrir frumur líkamans.  Sækjum í það sem fitar okkur þó að við viljum ekki fitna og séum e.t.v. í hættulegri yfirþyngd! ..

Ég held að þetta sé það sem Eckhart Tolle talar um, þegar hann talar um að næra sársaukalíkamann.  Við erum að næra sársauka okkar í stað þess að næra hamingju okkar.   Tolle segist t.d. vera hissa að í veröld sem stærstur meiri hluti mannkyns vill frið en ekki stríð,  vill ofbeldislausan heim, séum við að kaupa okkur inn á ofbeldismyndir. -

Nýlegar voru hugmyndir á lofti að fjöldamorðinginn Anders Breivik hefði orðið fyrir áhrifum af ákveðinni bíómynd. - Við vitum alveg að fjölmiðlar, tölvuleikir,  kvikmyndir o.fl.  hefur áhrif á undirmeðvitundina.  Það hefur áhrif til ills,  en sem betur fer hefur það líka áhrif til góðs.  Það er til fullt af "feel-good" myndum,  sem skilja mann eftir með sólina í hjartanu. -

Ég er ekki að tala um að við eigum að láta eins og ofbeldi þrífist ekki, - en við eigum ekki að fóðra það. -

Alveg eins og með úlfinn - sá sem þú fóðrar vex og dafnar og sá sem þú sveltir veslast upp og deyr. -

Þetta gildir um allt, þetta þekkja þau sem eru með "græna fingur" - og huga að garðinum sínum og þetta gildir að sjálfsögðu um börnin okkar, -  ekkert þurfa börn, eða fátt, frekar - en athygli frá foreldrum sínum. -  Þau visna ekki og deyja við athyglisskortinn og áhugaleysið, en eitthvað innra með þeim veikist þegar þau fá ekki athygli.  Ég las í bók sem ég kynnti mér á námskeiði í HR, sem ber heitið "Well-Being" að mikilvægi athyglinnar er sannað.  Það sem er mikilvægast og í fyrsta sæti er:

Jákvæð athygli, þ.e. að taka eftir hinu jákvæða,  

í öðru sæti er að taka eftir hinu neikvæða

og það versta er að veita EKKI athygli, eða að vera afskiptalaus með öllu.

-  Allir þurfa að sjást, og það er vont að upplifa sig ósýnilega/n.

Hamingjan og gleðin vill heldur ekki vera ósýnileg, hún þarf athygli og næringu til þess að geta dregið hestvagninn. -

Louise  Hay er þekkt kona, sem hefur skrifað margar bækur um hvernig hún vann sig út úr neikvæðri "forritun" sem barn. Hún talar um sig sem 85 ára unga en ekki gamla, og  hefur notað þessa jákvæðu næringafræði. Hún hefur vanið sig á að virkja hugann til jákvæðni með því að fara með daglegar staðhæfingar,   eða  "affirmations" -

Þessar staðhæfingar sem við þörfnumst  er ekki erfitt að finna, - þær eru andstæða þess niðurrifs, eða þeirra orða sem margir nota daglega og við flest ef ekki öll.  Niðurrifs og afneitunar á okkur sjálfum. -  Í stað þessa niðurrifs þurfum við að fara að samþykkja og það gerum við m.a. með jákvæðum staðhæfingum. -

Orð eru álög, eins og Sigga Kling segir í samnefndri bók.

Í staðinn fyrir að segja "Ég er lúser"  - segjum við  "Ég er sigurvegari" ..  Við höfum val um að klæða okkur í annars vegar "Winner bolinn" á morgnana eða "Loser" bolinn .. Við getum fóðrað lúserinn í okkur og við getum fóðrað þann sem tapar.  -

Það er mikilvægt að þó að það gerist ekki nein barbabrella á einum degi, þá alveg eins og neikvæða sjálfstalið hefur e.t.v. komið okkur í neikvæðan gír á löngum tíma,  þá tekur jákvæða talið sinn tíma. - En það virkar ekki ef því er bara hætt.  Það þýðir ekkert að fara bara í jákvæðniátak í þrjá daga og svo búið.  Lífið er ekki átak,  kúr, eða spretthlaup,  heldur er lífið langhlaup.  Ég held það standi meira að segja utan á GH magazine! .. (Góði hirðirinn).   -

það hljóta allir að vera sammála hvorn úlfinn, eða hestinn þeir vilji helst fóðra.

En hvernig breyti ég gömlum vana, ef ég er búin/n að tala niður til mín og vera í sama hjólfarinu svona lengi?  -

"We are what we repeatedly do. Excellence, then, is not an act, but a habit." - (Aristotle)

Ég fékk þýðingu á þessu frá Jóhanni Pétri Sturlusyni, sem einmitt hefur sérhæft sig í því sem kallað er breytingastjórnun og er með ráðgjöf þar að lútandi hjá www.stjornun.is , - en það á viðskiptasviði, - en það merkilega er að það sem virkar á einu sviði virkar venjulega á öðru líka! ..

"Endurteknar athafnir móta hver við erum. Yfirburðaárangur næst því ekki með skammtímaátaki heldur með venjum eða lífsstíl - Við erum skepnur vanans." 

Við upplifum oft að við séum föst, - við höfum ekki val, en við höfum a.m.k. val um viðhorf, við höfum val um andlega næringu, og líkamlega. Hvernig væri að byrja þar.  Breyta einu í einu?

Það er "win-win"  ástand að velja hið góða og jákvæða, vegna þess að það sem við segjum og gerum hefur ekki síst áhrif á okkur sjálf.

Þannig virkar bergmál lífsins,  við köllum  "þú ert  fífl" í bergið og það endurómar til okkar.  Við köllum "þú ert frábær" í bergið og það endurómar til okkar ... við getum notað þetta með "winner" - "loser" .. hugtökin. -

Á sama hátt virkar t.d. gremjan, gremjan i garð annarra, - þegar við pirrumst á fólkinu í kringum okkur, höfum e.t.v lent í uppákomu og sitjum uppi með sárt ennið, sofum ekki, liggjum andvaka með gremjuna mallandi á meðan sá eða sú sem við erum gröm útí sefur kannski værum blundi. - Hver borgar þann reikning og hvaða áhrif hefur það á okkur að hafa svona leigjanda sem borgar ekki húsaleigu í höfðinu? -

Það þarf hugarfarsbreytingu til að tileinka sér og fóðra sig með því góða,  stundum þarf ákveðinn kjark eða hugrekki til þess.  Hugrekki til að stíga upp úr gömlum siðum og gömlum vana. -  Hugrekki til að segja upphátt:  ´"Ég er sigurvegari" .. og það þarf trú. Það þarf sýnina, að sjá fyrir sér sigurvegarann og það þarf trúna til að trúa á hann, ef að við trúum því ekki af hverju ættu hinir að gera það? - ..

Við þurfum að standa upp og fara að ganga lífsgönguna,  lifa lífinu lifandi meðan við höfum tækifæri, orku og val - nýta okkur þann fjársjóð sem innra með okkur býr og kemur okkur áfram,  setja hamingjuhestinn fyrir framan kerruna og slá svo í! ...

GUР gefi mér æðruleysi

Til að sætta mig við það sem ég get ekki breytt

Kjark til að breyta því sem ég get breytt

Og vit til að greina þar á milli

Þakkir til allra þeirra sem hafa verið samferða mér hingað til á lífsgöngunni, sem hafa kennt mér, leitt mig og hvatt .. líka sem hafa verið mér erfið/ir, þvi að þar hef ég líka lært.

- Lífsins skóli færir okkur endalaus verkefni til að takast á við.

(Ég notaði þennan grunn sem fyrirlestur hjá Hafnarfjarðardeild Rauða krossins fyrir fólk í atvinnuleit.)


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband